Þróunarsjóður innflytjendamála útlutar milljónum til verkefna um inngildingu – Ein með tíu milljónir í styrki á seinustu tveimur árum

Þróunarsjóður innflytjendamála veitir styrki til verkefna sem eiga að efla þátttöku innflytjenda í íslensku samfélagi. Áhersla er lögð á virkari notkun íslensku, þátttöku á jafningjagrunni og verkefni sem auka skilning og samkennd milli innlendra og innflytjenda í samfélagi, á vinnustöðum og í námi.

Í nýjustu úthlutun sjóðsins, sem fór fram í desember 2025, hlutu 28 verkefni alls 70 milljónir króna.

Stærstu styrkirnir í nýjustu úthlutun

Auglýsing

Hæstu styrkirnir í úthlutun ársins 2025 námu 5 milljónum króna hver. Eftirfarandi verkefni hlutu þá upphæð:

  • Inngildingar skrefin, Magnea Marinósdóttir, 5.000.000 kr.
  • Cultivating an Ecology of Belonging at the University of Iceland, Háskóli Íslands – Sprettur, 5.000.000 kr.
  • Icelandic Centre for Immigration Research, Háskólinn á Akureyri, 5.000.000 kr.
  • Saman í samfélagi – þátttaka á jafningjagrunni, Sveitarfélagið Vogar, 5.000.000 kr.
  • Frístundaþátttaka ungmenna á framhaldsskólaaldri af erlendum uppruna, Akureyrarbær, 5.000.000 kr.

Að auki voru veittir nokkrir styrkir rétt undir hæstu upphæð, þar á meðal 4,8 milljónir króna til verkefnis um íslenskukennslu og stefnumótun í Mýrdalshreppi og 4,5 milljónir króna til verkefnisins Íslenskuspor á Suðurnesjum.

Áhugaverð verkefni úr eldri úthlutunum

Árin á undan hafa einnig fengið styrki verkefni sem vakið hafa athygli, bæði rannsóknir og þróunarverkefni. Þar á meðal eru:

  • Inngilding á vinnumarkaði, inngilding á vinnustað – áskoranir og árangur, Mirra fræðslu og rannsóknarsetur, rannsókn, 5.000.000 kr.
  • The Lived Experience of Skilled Middle Eastern Refugees on Labor Market Integration in Iceland, Ragheb A J Besaiso, þróunarverkefni, 5.000.000 kr.
  • Ungir leiðtogar, Antirasistarnir, verkefni, 2.500.000 kr.
  • Reynsla og upplifun ungs fólks á Íslandi af einelti sem einkennist af kynþátta- og menningarfordómum, Sema Erla Serdaroglu, rannsókn, 2.000.000 kr.
  • Mállíðan: Vellíðunar stuðningshópur fyrir konur að læra íslenskt mál, Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, verkefni, 3.000.000 kr.
  • Lýðræðisleg þátttaka innflytjenda í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026, Magnea Marinósdóttir, verkefni, 5.000.000 kr.
  • Courageous steps: Migrant women combatting gender based violence, Slagtog, félagasamtök um feminíska sjálfsvörn, annað, 4.400.000 kr.
  • The inclusion of Muslim immigrant women to the Icelandic labour market: tailwinds and hindrances, Fayrouz Nouh, rannsókn, 5.500.000 kr.
  • Lýðræðisþátttaka innflytjenda, MM ráðgjöf hf., þróunarverkefni, 6.000.000 kr.
  • Financial inclusion of immigrants in Iceland, Háskóli Íslands – Félagsvísindasvið, rannsókn, 5.300.000 kr.
  • Examining race, racism and Whiteness in Icelandic educational materials, Elizabeth Bik Yee Lay, rannsókn, 1.400.000 kr.
  • Kennsla ÍTM fyrir döff ungmenni og fullorðna af erlendum uppruna, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, þróunarverkefni, 2.000.000 kr.
  • Lífsbarátta innflytjenda á tímum Covid-19 eftir atvinnumissi í ferðaþjónustu, Mirra fræðslu og rannsóknarsetur, rannsókn, 1.500.000 kr.
  • NEET hópurinn: Staða og bakgrunnur erlendra ungmenna utan vinnumarkaðar og skóla, Varða – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins, rannsókn, 4.000.000 kr.
  • Ungir innflytjendur – samfélagsverkefni, Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, þróunarverkefni, 3.000.000 kr.

Úthlutanir sjóðsins sýna að stór hluti fjármagnsins hefur ítrekað farið til rannsókna og verkefna sem snúa að inngildingu, lýðræðisþátttöku og félagslegri stöðu innflytjenda á Íslandi. Magnea Marínósdóttir trónir þó á toppnum en hún hefur fengið 10 milljónir samtals í seinustu tveimur úthlutunum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing