Þýskir fjölmiðlar greina nú frá því að þýsk yfirvöld hafi borið kennsl á alla þá einstaklinga sem grunaðir eru um að hafa staðið að sprengingu á Nord Stream 1 og 2 gasleiðslunum í september 2022.
Rannsóknin, sem byggir á samstarfi blaðamanna Süddeutsche Zeitung, Die Zeit og ríkisfjölmiðilsins ARD, dregur upp söguþráð sem minnir helst á njósnamynd.
Í heild eru sjö einstaklingar grunaðir um þátttöku í árásinni, þar af einn sem talið er að hafi látist í kjölfar sprenginganna.
Allir eru þeir úkraínskir ríkisborgarar og að sögn blaðanna hafa þegar verið gefnar út handtökuskipanir á hendur sex þeirra.
Fölsk vegabréf og leigð skúta
Einn úr hópnum var handtekinn á Ítalíu í síðustu viku, 49 ára gamall maður sem talinn er hafa verið leiðtogi hópsins.
Hópurinn leigði seglbátinn „Andromeda“ í Rostock í Þýskalandi undir fölskum nöfnum.
Um borð voru fjórir kafarar, sprengjusérfræðingur, skipstjóri og leiðtogi.
Skipstjórinn, sem sagður er „afskaplega reyndur sæfari frá Odessa“, hafði áður sótt um vegabréfsáritun til Hollands, og fundust fingraför hans um borð í bátnum.
Ein konan í hópnum hefur tengsl við kafaraskóla í Kænugarði.
Sprengiefni og hernaðarleg aðstoð
Fram kemur að sprengingarnar hafi verið framkvæmdar með fjórum tímastilltum sprengjum, hver um sig á bilinu 14 til 27 kíló að þyngd og úr blöndu af efnunum hexogen og octogen.
Þessi efni eru meðal þeirra öflugustu sem notuð eru í hernaðaraðgerðum.
Samkvæmt ARD flúði einn úr hópnum til Úkraínu árið 2024 með bíl sem skráður er á úkraínska hernaðarfulltrúann í Póllandi, mögulega til að komast hjá handtöku.
Þýsku fjölmiðlarnir segja nú að rannsóknin styrki enn frekar grunsemdir um að hópurinn hafi hlotið aðstoð frá úkraínskum stjórnvöldum, jafnvel með vitund og stuðningi hersins.
„Með hverju nýju nafni verður málið pólitískt viðkvæmara,“ skrifar Süddeutsche Zeitung.