Trump lætur þingmenn heyra það – Neituðu að standa á fætur til að minnast hinnar 23 ára Irynu Zarutska

Donald Trump bandaríkjaforseti hélt sína árlegru stefnuræðu (State of the union) á þriðjudagskvöld. Í ræðu sinni minntist hann hinnar 23 ára gömlu Irynu Zarutska, úkraínskrar flóttakonu sem var myrt í hnífaárás í Charlotte í Norður Karólínu í fyrra þegar hún var á leið til vinnu. Morðið var tilefnislaust og sérlega grimmilegt og vakti mikla athygli þó margir fjölmiðlar hefðu ekki fjallað um málið.

Í ræðu sinni sagði forsetinn að hún hefði flúið stríðið í Úkraínu ásamt móður sinni og sest að í Bandaríkjunum í leit að betra lífi.

Auglýsing

Móðir hennar, Anna Zarutska, var viðstödd ræðuna og sat meðal gesta í þingsal. Þegar forsetinn lauk umfjöllun sinni um dóttur hennar reis hún á fætur og greinilega í miklu tilfinningalegu uppnámi.

„Hvernig getið þið setið þarna?“

Forsetinn lýsti því hvernig hún var myrt af manni sem forsetinn kallaði „hræðilegt skrímsli“ og hafði verið handtekinn oftar en 10 sinnum fyrir alvarlega glæpi, en var engu að síður sleppt.

Hann lofaði móður Irynu að réttlætinu yrði fullnægt og að tekið yrði fastar á síbrotamönnum í réttarkerfinu.

Þegar forsetinn hafði lokið máli sínu bað hann þingheim að rísa úr sætum til að minnast Irynu. Hluti viðstaddra stóð upp og klappaði, en aðrir sátu áfram og neituðu að standa á fætur.

Í kjölfarið spurði forsetinn úr pontu: „How do you not stand? How do you not stand?“ og endurtók spurninguna tvisvar, en án árangurs.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing