Í gær birtist pistill á Heimildinni eftir þekktasta trans aðgerðasinna Íslands, Uglu Stefaníu Jónsdóttur. Ugla var eins og sumum er kunnugt mótframbjóðandi minn í oddvitasæti við síðustu Alþingiskosningar í nóvember síðastliðnum.
Umfjöllun um dóm Hæstaréttar Bretlands
Í pistli sínum fjallar Ugla um dóm Hæstaréttar Bretlands í máli sem skoskar kvenréttindakonur höfðuðu gegn skosku ríkisstjórninni er varðar lagalegar skilgreiningar á orðunum „kona“ í jafnréttislögum Sameinaða konungdæmisins á Bretlandseyjum.
Systursamtök Samtakanna 22, LGB Alliance fékk leyfi Hæstarréttar til þess að grípa inn í málið (e. Intervene) með beinum hætti, til þess að koma á framfæri þeirri tvöföldu mismunum sem lesbíur verða fyrir sem samkynhneigðar konur, og lakari réttarstöðu samkynhneigðra almennt vegna rangtúlkun laganna af hagsmunasamtökum, eins og systursamtökum Samtakanna ´78, Stonewall. Stonewall hefur í mörg ár, líkt og Samtökin ´78, séð um „hinsegin fræðslu“ í ríkisstofnunum, skólum, embættum og fl. og kynnt rangtúlkanir sínar sem lög sem öllum bæri að fara eftir.
Fjölmiðlar eins og Ríkisútvarpið, Vísir og Heimildin hafa því miður slæman ávana að birta allt frá Uglu og samherjunum í Samtökunum ´78 gagnrýnilaust og án þess að staðreyndatékka eitt eða neitt.
Rangtúlkanir um dóm Hæstaréttar
Ugla segir: „Með dómnum var kveðið á um að ég geti ekki lengur orðið fyrir kvenhatri á vinnustað og að ég sé ekki lengur talin sem kona í tölfræði í stjórnum fyrirtækja eða opinberra stofnanna. Einmitt það já.“
Dómurinn fjallaði ekkert um þessar ranghugmyndir Uglu um kvenhatur. Dómurinn staðfesti það sem skosku kvenréttindakonurnar, forsvarsmenn Sex matters og LGB Alliance vissu frá upphafi. Karlar geta aldrei orðið konur – með eða án breytingar á kynskráningu.
Lögin sem voru til umfjöllunar dómsins var Gender Recognition Act frá árinu 2004 (Lög um viðkurkenningu kyngervis) og Equality Act 2010 (Jafnréttislög).
Frá árinu 2004 gat fólk, með sjúkdómsgreininguna „kynáttunarvandi“, fengið svokallað kyngervisvottorð (e. Gender Recognition Certificate) sem gerði því kleift að fá útgefið nýtt fæðingarvottorð og skilríki.
Lögin staðfestu einfaldlega að svokallaður lagalegur tilbúningur (e. Legal fiction) er ekki ofar kynbundnum réttindum kvenna – og með „kvenna“ er átt við líffræðilegar konur, enda eru ekki til öðruvísi konur í raunheimum.
Réttindastaða transfólks
Ugla rekur í pistli sínum að réttindi transfólks hafi verið skert með þessu, en það er hinsvegar ekki rétt. Ugla átti aldrei þennan rétt að vera í rýmum ætluðum konum. Ugla átti aldrei rétt á að vera kona í tölfræði stjórnun fyrirtækja eða opinberra stofnanna.
Í einni svipan var samkomufrelsi homma annarsvegar og lesbía hinsvegar (og fleiri hópa ef út í það er farið) liðin tíð.
Þegar konur segja nei við kvengervla er kvenfyrirlitningin aldrei langt undan. Þá er freki karlinn og tilkarlinn með alla sína eitruðu karlmennsku (svo ég noti lingóið þeirra) fljótur að birtast og hótar því að ætla ekki að virða samfélagssáttmálann um kynbundin rými kvenna með ógnandi myndböndum og greinaskrifum.
Fjölmiðlarnir aðstoða við upplýsingafölsun
Hinsvegar vegna rangtúlkana og upplýsingaóreiðu hinsegin samtaka á borð við Stonewall, ACLU, GLAAD, Samtakanna ´78, Fri og fleiri þá frömdu karlar sem skilgreina sig sem konur innbrot um hábjartan dag inn á kynbundið réttindasvið kvenna, með hjálp fjölmiðla eins og Heimildarinnar, Ríkisútvarpsins og Vísis sem staðreyndatékka ekki neinn skapaðan hlut sem kemur frá þessum aðgerðasinnum.
Dómur Hæstaréttar tryggir nú konum sem skilgreina sig sem karla rétt á fæðingarorlofi. Þessu skautaði Ugla algjörlega framhjá.
Lögin staðfesta einnig að samkynhneigðir, þ.e. fólk sem laðast að sama kyni (og þá er einnig átt við líffræðilegt kyn), mega koma saman, auglýsa viðburði og útiloka hitt kynið frá samkomum sem er aðeins ætluðum konum eða körlum.
Réttarstaðan á Íslandi
Á Íslandi hafa samkynhneigðir ekki þennan rétt lengur, því við megum ekki mismuna á grundvelli svokallaðrar kynvitundar og kyntjáningar.
Þetta minntist Ugla ekkert á.
Orðið kynvitund birtist fyrst þingheimi árið 2010 á 138.löggjafarþingi í umsögn frá Mannréttindaskrifstofu Íslands. Fyrir 15 árum vissi Mannréttindaskrifstofan að kynin væri tvö, en kynnir þingheimi fyrir umdeildum kenningum kynjafræðinnar um svokallaða kynvitund sem er algjörlega frumspekileg tilgáta sem á ekkert erindi í lög frekar en t.d. sálin.
Áhrif Samtakanna ’78 á lagasetningu
Hinsvegar er orðinu troðið í lög eftir að Guðmundur Helgason, þáverandi formaður Samtakanna ´78 skrifaði umsögn og fór fram á að það yrði gert.
Og þingið hlýddi því án efnislegrar umræðu. Og í einni svipan var samkomufrelsi homma annarsvegar og lesbía hinsvegar (og fleiri hópa ef út í það er farið) liðin tíð.
Hinsvegar þá veit Ugla þetta allt saman. Og þau vita þetta öll hjá Samtökunum ´78 líka. Þessar blekkingar er hluti af refskák sem var hönnuð fyrir hinsegin félög á Vesturlöndum.
Lögfræðisamsteypan Dentons gerði úttekt og gaf út skýrslu, að beiðni alþjóðlegra ungmennasamtaka ILGYO, sem íslensku samtökin áttu aðild að og Q-félag stúdenta á enn aðild að. Skýrslan er í raun vegvísir sem hagsmunafélögin áttu að fara eftir (og hafa gert) og í henni eru leiðbeiningar hvernig sé best að blekkja stjórnvöld og fjölmiðla til þess að ná fram markmiðum sínum.
Enginn annar en Ugla Stefanía er höfundur inngangs skýrslunnar.
Kallað eftir lagabreytingum
Við verðum nefnilega að átta okkur á því að á bakvið þennan „jaðarsetta“ og „viðkvæmasta“ hóp samfélagsins er risastór kolkrabbi þar sem hverjum anga hans er stjórnað af öflugum peningamaskínum.
Á meðan við búum við löggjöf þar sem orðin kyntjáning og kynvitund eru í lögum eins og í dag, þá eru réttindi kvenna, barna og samkynhneigðra stórkostlega skert.
Þessi orð þarf að nema úr íslenskri löggjöf og lögin um kynrænt sjálfræði, sem ég tel að standist ekki stjórnarskrá, verður að fella úr gildi.
Með því að segja það er ég alls ekki aðsegja að réttindi eins eða neins eigi að skerða.
Við eigum hinsvegar öll að njóta sömu mannréttinda skv. 65. grein stjórnarskrárinnar.
Það er ekki hlutverk kvenna og samkynhneigðra að fórna sínum réttindum fyrir örlítinn hóp karla sem telja sig vera í ofur viðkvæmri stöðu. Það eru til margir aðrir hópar af körlum í viðkvæmri stöðu. Það er verk okkar karlanna að bjóða þá velkomna og koma fram við þá til jafns við aðra.