Fræðsluefni sem birt hefur verið á vef Æskulýðsvettvangsins hefur vakið athygli og töluverðar umræður á samfélagsmiðlum síðustu daga.
Samkvæmt lýsingu á heimasíðunni er Æskulýðsvettvangurinn samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands og vinnur að fræðslu- og forvarnamálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi og styður félög við að skapa öruggt, inngildandi og uppbyggilegt umhverfi fyrir ungt fólk.
„Eitt af helstu einkennum hvítra forréttinda er þegar einstaklingar (og vestræn menning) gera ráð fyrir að þeirra reynsla og menning sé „venjuleg“ eða réttust og annað er talið öðruvísi og jafnvel óæðra“
Umdeilt hugtakasafn
Sérstaklega hefur verið bent á svokallað hugtakasafn verkefnisins þar sem hugtökin hvítleiki og hvít forréttindi eru skilgreind á hátt sem margir telja umdeildan.
Í hugtakasafninu er „hvítleika“ (whiteness) lýst svo:
„Hvítleiki er hugtak sem nær yfir einkenni og reynslu sem tengist hvítum húðlit og þann ávinning sem hvítt fólk hefur fram yfir aðra vegna húðlitar. Í vestrænum ríkjum er hvítleiki talinn vera normið og fólk af öðrum uppruna og húðlit er talið öðruvísi.“

„Hvítum forréttindum“ (white privilege) er svo lýst á eftirfarandi hátt:
„Hvít forréttindi eru forréttindi sem einstaklingar sem eru með hvítan húðlit njóta góðs af fram yfir fólk með annan húðlit í vestrænum ríkjum. Hvít forréttindi eru kerfisbundin og ná meðal annars til samfélagslegra, menningarlegra, efnahagslegra og pólitískra þátta og þess ávinnings sem hvítt fólk hefur fram yfir annað fólk. Eitt af helstu einkennum hvítra forréttinda er þegar einstaklingar (og vestræn menning) gera ráð fyrir að þeirra reynsla og menning sé „venjuleg“ eða réttust og annað er talið öðruvísi og jafnvel óæðra.“

Ekki sáust samsvarandi skilgreiningar sem lýstu öðrum húðlit á svipaðan máta. Einnig er heldur ekkert rætt um að í öðrum en vestrænum ríkjum séu húðlitir aðrir en hvítir taldir normið og að fólk af öðrum húðlit eða uppruna þar sé álitið öðruvísi.
Námskeið í samstarfi við Semu Erlu Serdaroglu
Á síðunni er Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands sögð vera höfundur þeirra verkfæra sem finna má á síðunni.
Sema Erla er jafnframt stofnandi samtakanna Solaris.
Námskeiðið er sagt fjalla meðal annars um fjölmenningarleg samfélög í íslensku samhengi, mismunandi birtingarmyndir fordóma, kynþáttaníðs og mismununar, og hvernig félög geta skapað inngildandi umhverfi fyrir börn og ungmenni.
Athygli vakti að einnig er mælt með að önnur námskeið séu sótt.

Þar er meðal annars að finna lýsingu á „Vinnustofu um inngildingu og fjölmenningu í íþrótta- og æskulýðsstarfi“ en þar er bent á hvernig hægt er að hafa samband við Semu Erlu til að bóka.


Efnið í endurskoðun – Landsbjörg bregst við
Nútíminn hafði samband við Gunnar Stefánsson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, sem er eitt af þeim félögum sem standa að Æskulýðsvettvangnum.
Að hans sögn hafa nokkrir haft samband vegna efnisins og segir hann að hugtakasafnið sé nú í endurskoðun.
„Þetta fræðsluefni var sett upp með góðum tilgangi, en það er ljóst að þarna eru lýsingar sem eru ekki heppilegar og við höfum því ákveðið að fara yfir þetta allt saman aftur,“ segir Gunnar.
Hann ítrekar að efnið sé í heild sinni í endurskoðun.
Hverjir standa að Æskulýðsvettvangnum?
Æskulýðsvettvangurinn er samvinnuverkefni á vegum fjögurra stórra æskulýðssamtaka:
- Skátarnir
- Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- KFUM og KFUK á Íslandi
- Ungmennafélag Íslands (UMFÍ)
Framkvæmda og verkefnastýra Æskulýðsvettvangsins er Kolbrún Ósk Pétursdóttir.

Fulltrúar aðildarsamtaka:
- Auður Þorsteinsdóttir – UMFÍ
- Gunnar Stefánsson – Landsbjörg
- Ragnar Þór Þrastarson – Skátarnir
- Tómas Torfason (formaður stjórnar) – KFUM og KFUK
- Ráðgjafahópur:
- Helena Dögg Magnúsdóttir – Landsbjörg
- Hjördís Rós Jónsdóttir – KFUM og KFUK
- Katrín Kemp Stefánsdóttir – Skátarnir
- Ragnheiður Sigurðardóttir – UMFÍ