Ung kona ákvað að skella sér í morgunsund – Nauðgað af ólöglegum innflytjanda

Marokkóskur maður, sem dvelur ólöglega á Spáni, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa nauðgað 22 ára konu á Malvarrosa ströndinni í Valencia. Vegfarandi varð var við árásina og kallaði á lögreglu, sem náði manninum eftir stutta eftirför.

Árásin á að hafa átt sér stað um klukkan 6.45 á sunnudagsmorgun. Konan hafði farið í sjóinn að synda og lá í sandinum þegar maðurinn kom að henni.

Auglýsing

Samkvæmt kæru konunnar talaði maðurinn fyrst vingjarnlega við hana en réðst síðan á hana, reif af henni kjólinn og hélt fyrir munn hennar á meðan hann beitti hana kynferðislegu ofbeldi.

Vegfarandi kom henni til hjálpar

Ungur maður sem gekk eftir ströndinni sá hvað var að gerast og gerði lögreglumönnum, sem voru við eftirlit skammt frá, viðvart.

Hinn grunaði tók á flótta þegar lögreglan nálgaðist. Þegar lögreglumenn náðu honum veitti hann mótspyrnu og sló einn þeirra ítrekað í andlitið.

Lögreglumaðurinn þurfti að leita læknisaðstoðar vegna áverka sinna.

Konan flutt á sjúkrahús

Lögreglukona ræddi við konuna á vettvangi og var hún síðan flutt á sjúkrahús í Valencia þar sem hún fékk aðhlynningu.

Hinn handtekni er 27 ára og frá Marokkó. Hann dvelur ólöglega á Spáni, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa spænsku ríkisstjórnarinnar.

Hann er grunaður um nauðgun og líkamsárás á lögreglumann. Sérdeild spænsku ríkislögreglunnar sem rannsakar kynferðisbrot hefur tekið við málinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing