Valmar Väljaots ræðir afleiðingar gagnrýni sinnar á kynfræðslu í kirkjunni og starfsmissinn í kjölfarið

Fyrrum organisti Glerárkirkju á Akureyri, Valmar Väljaots, segir gagnrýni sína á kynfræðslu Siggu Daggar í fermingarfræðslu kirkjunnar hafa haft veruleg áhrif á starfsferil sinn.

Í nýju viðtali í þættinum Ein pæling á Pardus.is fer hann yfir afstöðu sína, uppsögnina og hvers vegna hann taldi sig ekki geta þagað.

Segir efnið óviðeigandi í kirkju

Auglýsing

Í viðtalinu lýsir Valmar því að honum hafi þótt kynfræðslan ganga of langt.

Hann segir sér sérstaklega hafa misboðið að kynferðislegar myndir sem var varpað upp á veggi kirkjunnar.

„Mér finnst óviðeigandi að tippa- og píku­myndir séu varpaðar á kirkjuvegg. Þetta er eitthvað sem má gera annars staðar, ef þess þarf,“ segir Valmar.

Hann leggur áherslu á að gagnrýni hans snúist ekki um kynfræðslu sem slíka, heldur samhengi, vettvang og aldur þeirra barna sem um ræðir.

Vísar í fyrri reynslu sem foreldri og kennari

Valmar rifjar einnig upp reynslu sína sem foreldri þegar Sigga Dögg var með kynfræðslu á Akureyri fyrir nokkrum árum.

Þá hafi umræðan, að hans mati, verið tiltölulega gróf miðað við aldur nemenda í níunda bekk.

Hann bendir jafnframt á að þótt hann hafi ekki verið viðstaddur þá fermingarfræðslu sem gagnrýnin beindist að, né einu sinni verið á Íslandi á þeim tíma, telji hann engu að síður mikilvægt að ræða þessi mál.

„Mér finnst 13 ára krakkar vera viðkvæmur hópur,“ segir hann og vísar til langrar reynslu sinnar af kennslu áður en hann hóf störf sem organisti.

Að hans mati er mikill munur á þroska og feimnismálum barna á þessum aldri.

Telur umræðuna áhættusama

Í viðtalinu segir Valmar að honum þyki það „töluvert eldfimt og áhættusamt“ að gera kröfu um að fermingarbörn ræði um sjálfsfróun í tengslum við fermingarfræðslu innan kirkjunnar.

Hann telur að slík nálgun geti gengið of nærri sumum börnum og að meiri varfærni þurfi að ríkja þegar fjallað er um viðkvæm málefni í trúarlegu samhengi.

Segist ekki sjá eftir að hafa tjáð sig

Þrátt fyrir að gagnrýni hans hafi, að eigin sögn, haft alvarlegar afleiðingar fyrir hann persónulega, segist Valmar ekki sjá eftir því að hafa látið í sér heyra.

Hann segir umræðuna mikilvæga og að hún snúist um grundvallarspurningar um hlutverk kirkjunnar, mörk fræðslu og vernd barna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing