Bandaríska vefsíðan Transgender Map, sem haldið er úti af aðgerðasinnanum Andrea James, heldur úti gagnagrunni þar sem einstaklingar sem gagnrýna hugmyndafræði um kynvitund og kynleiðréttingu eru skráðir með nafni og persónuupplýsingum.
Samkvæmt upplýsingum á síðunni er henni ætlað að vera „fræðsluverkefni um trans málefni“, en undir sérstökum kafla sem ber heitið People eru birtar ítarlegar upplýsingar um fólk sem lýst er sem „anti-trans activists“ eða andstæðingum transréttinda.
Persónuupplýsingar birtar opinberlega
Í hverri færslu eru ekki aðeins nefnd nöfn og störf viðkomandi heldur einnig fjölskyldutengsl, fæðingardagur, heimabær, hjúskaparstaða og tengsl við samtök eða stjórnmálaflokka.
Þá eru birtir tenglar á viðtöl, fréttir og samfélagsmiðla þar sem viðkomandi hefur tjáð sig um málefni kynvitundar.
Síðan notar heimildir úr fjölmiðlum til að staðfesta upplýsingar, en í mörgum tilvikum er valið efni sett fram í niðrandi eða undarlegu samhengi.
Að minnsta kosti einn Íslendingur á listanum
Í gagnagrunninum má meðal annars finna færslu um Eld Smára Kristinsson, sem lýst er sem „íslenskum stjórnmálamanni og aðgerðarsinna sem berst gegn transfólki“.
Þar eru birt nöfn foreldra hans, hjúskaparstaða og upplýsingar um meint pólitísk tengsl.

Svipaðar síður eru til um fjölda annarra einstaklinga, þar á meðal rithöfundinn J.K. Rowling og fræðimenn sem hafa gagnrýnt umræðu um kyn og önnur slík málefni.
Brot á persónuverndarlögum?
Í Evrópu gætu slíkar birtingar jafnframt talist brot á persónuverndarlöggjöf, þar sem um viðkvæmar upplýsingar sé að ræða sem birtar eru án samþykkis.
Þar sem síðunni er haldið úti frá Bandaríkjunum nýtur hún verndar samkvæmt stjórnarskrárbundnu tjáningarfrelsi landsins.
Í Evrópu væri gagnasöfnunin sem á sér stað á síðunni þó gróft brot á persónuverndarlögum og eru fjöldi fordæma fyrir því að slíkir „svartir listar“ fari gegn lögum.