Verður sambýlismaðurinn einnig kærður fyrir morðið á Charlie Kirk? – Grunsamleg skilaboð varpa nýju ljósi á málið

Tyler Robinson, 22 ára, hefur verið ákærður fyrir morðið á Charlie Kirk sem skotinn var til bana við Utah Valley University þann 9. september.

Á blaðamannafundi í Utah sýslu í gær tilkynnti saksóknarinn, Jeff Gray, að að Robinson yrði ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og sex önnur brot, þar á meðal hindrun réttvísinnar og hvatningu til að eyða sönnunargögnum.

Auglýsing

Skilaboð sem Robinson sendi sambýlismanni sínum, Lance Twiggs, gegna lykilhlutverki í málinu.

Þar viðurkennir Robinson að hafa myrt Kirk og greinir frá ástæðum sínum: „Ég hafði fengið nóg af hatri hans. Suma er ekki hægt að semja við,“ skrifaði hann.

Skipulagði árásina í viku

Samkvæmt gögnum frá saksóknara hófst skipulagning árásarinnar viku fyrir morðið.

Í textaskilaboðum lýsir Robinson því hvernig hann fylgist með vettvangi og beið tækifæris til að nálgast riffilinn sem hann faldi í runna nálægt háskólasvæðinu.

Umræddur riffill er sagður hafa verið frá afa hans og hafði Robinson áhyggjur af því að fjölskyldumeðlimir hans myndu verða fyrir lögreglurannsókn.

„Ég er hræddur við hvað kallinn myndi gera ef ég kæmi ekki með riffilinn til baka… Ég veit ekki hvort hann hafi raðnúmer, en hann tengist mér ekki. Ég varð að skilja hann eftir í runna þar sem ég skipti um föt,“ segir í skilaboðunum sem gerð voru opinber í gær.

Þöggunarbeiðni og möguleg sekt sambýlismanns

Í skilaboðunum biður Robinson Twiggs um að þegja um málið og mögulega hjálpa til við að eyða sönnunargögnum.

Þetta hefur vakið vangaveltur um hvort Twiggs, sem sagður er í ástarsambandi með Robinson og er í hormónameðferð, verði einnig ákærður.

Á samfélagsmiðlum eru háværar kröfur um að Twiggs verði ákærður, en saksóknari neitaði að svara spurningum um hugsanlega samsekt hans að svo stöddu.

Textaskilaboðin vakið tortryggni

Eftir að textaskilaboðin voru birt í heild sinni hafa ýmsir gagnrýnendur á netinu dregið trúverðugleika þeirra í efa.

Sumir telja þau of vel orðuð og því er haldið fram að Robinson hafi viljað láta þau líta út fyrir að Twiggs væri saklaus.

„Þetta er eins og hann sé að skrifa með það í huga að einhver annar lesi þetta síðar og útiloki þátt Twiggs,“ sagði einn notandi á X.

Engin sönnunargögn hafa þó komið fram sem styðja þessar samsæriskenningar og lögregluyfirvöld hafa ekki tjáð sig frekar um slíkar fullyrðingar.

Hugsanleg dauðarefsing

Jeff Gray saksóknari tilkynnti einnig að hann hyggist krefjast dauðarefsingar í málinu.

„Ég tek þá ákvörðun ekki léttúðlega, og hún byggir eingöngu á þeim sönnunargögnum sem liggja fyrir, eðli glæpsins og alvarleika hans,“ sagði Gray.

Tyler Robinson var handtekinn 33 klukkustundum eftir árásina, eftir að foreldrar hans höfðu sannfært hann um að gefa sig fram, þegar þeir sáu myndir af honum í fjölmiðlum.

Hann hefur ekki játað sök fyrir dómi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing