Arnar Þór Jónsson, formaður Lýðræðisflokksins, birti harðorðan pistil á Facebook þar sem hann fagnar nýföllnum dómi Hæstaréttar Bretlands sem staðfestir að trans-konur séu ekki líffræðilegar konur og eigi því ekki að njóta lagalegra réttinda sem slíkar.
Hann lýsir niðurstöðunni sem „sigri fyrir heilbrigða skynsemi“ eftir það sem hann kallar árás á staðreyndir og rökvísi í nafni pólitískrar rétthugsunar.
„Við höfum séð þetta áður – kommúnismi í nýjum búningi“
Í pistli sínum líkir Arnar Þór þróun mála í vestrænum ríkjum, þar á meðal Íslandi, við hugmyndafræðilegan undirróður kommúnismans í Tékkóslóvakíu.
Hann vísar til orða Václavs Havels um hvernig fólk taki þátt í eigin kúgun með því að endurtaka áróður sem það í raun trúir ekki, vegna ótta og meðvirkni.
Gagnrýni á stjórnvöld, fjölmiðla og akademíu
Arnar gagnrýnir stjórnvöld fyrir að styðja við það sem hann kallar blekkingar og gagnrýnir jafnframt fjölmiðla fyrir að „básúna örgustu vitleysu“ í stað umræðu sem byggi á staðreyndum.
Hann varar við því að slíkt skapi samfélag þar sem einstaklingar hætti að spyrja spurninga og treysti yfirvöldum í blindni.
„Skylda okkar að efast“
Arnar Þór hvetur landsmenn til að sýna af sér sjálfstæða hugsun og andstöðu við það sem hann kallar „heilaþvott og innrætingu“.
Hann leggur áherslu á að vísindi byggist á gagnrýninni hugsun og að það sé siðferðileg skylda borgaranna að efast, spyrja og hafna ósannindum, jafnvel þegar þau koma frá ráðandi stofnunum.
Hér fyrir neðan má sjá færslu Arnar í heild sinni.