Vopnaður maður var handtekinn á golfvelli Donald Trump Bandaríkjaforseta í Kaliforníu eftir að alríkislögreglumenn sáu hann taka myndir og fylgjast með undirbúningi öryggisgæslu fyrir komu forsetans.
Maðurinn heitir Jeanine John Taele, er 38 ára og búsettur í borginni Downey. Hann var handtekinn á sunnudag á Trump National Golf Club í Rancho Palos Verdes, tveimur dögum áður en Trump átti að mæta þar á fjáröflunarkvöldverð Repúblikanaflokksins.
Tók myndir af öryggisgæslu
Óeinkennisklæddir alríkislögreglumenn tilkynntu um grunsamlegar ferðir Taele eftir að hafa séð hann ganga um golfvöllinn, taka ljósmyndir og myndbönd og virðast fylgjast með undirbúningi öryggisgæslunnar.
Lögreglumenn komu á vettvang og handtóku Taele á bílastæði golfvallarins. Við leit á honum fannst 16 skota magasín með holodda skotum í buxnavasa hans.
Í bifreið hans fann lögreglan hlaðna skammbyssu og annað hlaðið magasín með holodda skotum. Þá kom einnig í ljós að lögreglan í El Segundo hafði þegar Taele til rannsóknar vegna ráns.
Vopnabúr fannst á heimilinu
Vegna alvarleika málsins fengu rannsakendur heimild til að leita á heimili Taele í Downey á mánudag.
Þar fundust meðal annars ólöglega breyttur AR riffill, .45 kalíbera skammbyssa, hlutar úr öðrum AR riffli, skotheld vesti og mikið magn skotfæra fyrir bæði skammbyssur og riffla.
Lögregla lagði einnig hald á tvö fjarskiptatæki og margar minnisbækur sem sagðar eru innihalda grunsamlegar færslur. Yfirvöld hafa ekki upplýst hvað stóð í bókunum.
Leyniþjónustan rannsakar mögulega ógn við Trump
Bandaríska leyniþjónustan, FBI og sérstakur hryðjuverkahópur alríkislögreglunnar taka þátt í rannsókninni. Meðal þess sem verið er að kanna er hvort Taele hafi getað ógnað Trump eða gestum fjáröflunarkvöldverðarins.
Yfirvöld leggja þó áherslu á að engar vísbendingar hafi enn fundist um að yfirvofandi árás á forsetann hafi verið fyrirhuguð.
Taele hefur verið ákærður fyrir nokkur brot, þar á meðal rán og vörslu ólöglega breytts skotvopns. Hann neitaði sök. Trygging vegna lausnar úr haldi var ákveðin 250 þúsund Bandaríkjadalir, jafnvirði um 31 milljónar króna.
Rannsókn málsins heldur áfram og yfirvöld segja að fleiri ákærur kunni að bætast við.