WPATH viðurkennir fyrir dómi að vísindaleg óvissa hafi ríkt um meðferð transbarna – Gáfu sig út fyrir að vera helstu sérfræðingar á því sviði árum saman

Alþjóðasamtökin WPATH, sem árum saman hafa gefið sig út fyrir að vera með fremstu sérfræðingum heims í meðferð trans fólks, viðurkenna nú fyrir bandarískum dómstóli að læknisfræðileg og vísindaleg óvissa hafi ríkt um meðferð barna og ungmenna með kynama.

Þetta kemur fram í nýrri greinargerð samtakanna þar sem þau reyna að fá máli gegn sér vísað frá.

Auglýsing

Það sem vekur sérstaka athygli er að WPATH lýsir nú umdeildum fullyrðingum í eigin Standards of Care eingöngu sem skoðunum, en ekki leiðbeiningum sem beri að fylgja á slíkum meðferðum.

Það er mjög frábrugðið þeirri stöðu sem samtökin hafa haft árum saman. Leiðbeiningar WPATH hafa verið notaðar af læknum og heilbrigðisstofnunum víða um heim, þar á meðal á Íslandi, sem faglegt viðmið við meðferð trans fólks, þar á meðal barna.

Segja vísindalega óvissu allsráðandi

Í dómskjölunum tala WPATH samtökin sjálf um „medical and scientific uncertainty“, eða læknisfræðilega og vísindalega óvissu.

Samtökin segja jafnframt að veruleg læknisfræðileg deila standi yfir um meðferð trans barna og ungmenna.

Þetta eru því ekki orð gagnrýnenda WPATH samtakanna heldur hluti af lögfræðilegri vörn samtakanna sjálfra.

SEGM, Society for Evidence Based Gender Medicine, sem vakti athygli á greinargerðinni, segir þetta vera gífurlega breytingu á málflutningi WPATH.

Að mati SEGM hafa WPATH og aðrir sem stuðst hafa við staðla samtakanna árum saman komið fram eins og um viðurkenndan læknisfræðilegan staðal væri að ræða. Nú, þegar lagaleg ábyrgð er til skoðunar, leggi WPATH hins vegar áherslu á að einungis hafi verið um frjálsa tjáningu að ræða en ekki vísindalegar leiðbeiningar.

Bera fyrir sig málfrelsi

WPATH byggir stóran hluta varnar sinnar á málfrelsi.

Samtökin halda því fram að útgáfa leiðbeininganna sé fagleg og vísindaleg tjáning sem njóti verndar samkvæmt bandarísku stjórnarskránni.

WPATH vísar meðal annars til dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna þar sem fagleg tjáning naut verndar þótt stjórnvöld teldu þá meðferð sem byggð var á þeim leiðbeiningum ófullnægjandi.

Í svari Embættis landlæknis frá ágúst 2023 kom fram að sérfræðingar Landspítala störfuðu samkvæmt nýjustu alþjóðlegu leiðbeiningum WPATH“

Samtökin segja ekki sjálf að eigin meðferðir séu ófullnægjandi. Samtökin nota hins vegar þessa málfrelsisröksemd til að verja rétt sinn til að gefa út leiðbeiningarnar.

SEGM telur það sérstaklega athyglisvert þar sem WPATH hafi árum saman barist fyrir því að leiðbeiningar sínar væru teknar alvarlega sem læknisfræðilegt viðmið en beri nú fyrir sig að þar hafi verið um frjálsa tjáningu og skoðanir að ræða.

Læknarnir bera ábyrgðina

WPATH leggur einnig áherslu á að læknar sem notast við leiðbeiningarnar beri sjálfir ábyrgð á því sem þeir ráðleggja sjúklingum.

Í greinargerðinni segir:

„Doctors’ statements cannot be imputed to WPATH, because doctors bear independent responsibility for their own advice.“

Með öðrum orðum segja samtökin að læknarnir beri ábyrgð á eigin ráðleggingum.

SEGM segir að þetta skipti verulegu máli fyrir lækna og stofnanir sem hafa réttlætt meðferð með því að vísa til leiðbeininga WPATH.

Ef WPATH segir nú sjálft að umdeildar ráðleggingar séu skoðanir sem byggi á ófullnægjandi þekkingu og að læknarnir beri síðan sjálfir ábyrgð á notkun þeirra, sé mun erfiðara að líta á WPATH sem skjól gegn faglegri eða lagalegri ábyrgð.

Forseti WPATH ráðin yfirlæknir transteymis Landspítalans – samtök sem sætt hafa mikilli gagnrýni

WPATH var mikilvægur grundvöllur meðferða á Íslandi

Málið tengist einnig Íslandi með mjög beinum hætti.

Í svari Embættis landlæknis frá ágúst 2023 kom fram að sérfræðingar Landspítala störfuðu samkvæmt nýjustu alþjóðlegu leiðbeiningum WPATH:

Ári seinna var svarið: „Embætti landlæknis hefur engin tengsl við umrædd samtök“

„Þessar leiðbeiningar mynda mikilvægan þekkingarfræðilegan grundvöll við veitingu þessarar heilbrigðisþjónustu.“

Embætti landlæknis sagði jafnframt að verklagið sem því hefði verið kynnt gæfi til kynna að fylgt væri „bestu núverandi þekkingu“. Í sama svari kom fram að eftirlit landlæknis byggðist á því að þjónustan væri „viðtekin og gagnreynd“.

Þetta er mikilvægt í ljósi þess hvernig WPATH lýsir eigin stöðu nú.

Árið 2023 voru WPATH leiðbeiningarnar kynntar hér á landi sem mikilvægur þekkingarfræðilegur grundvöllur.

Nú segir WPATH fyrir dómi að læknisfræðileg og vísindaleg óvissa ríki og að umdeildar fullyrðingar í leiðbeiningum þeirra séu einungis skoðanir.

Landlæknir sagði síðar að engin tengsl væru við WPATH

Eftir að svokallaðar WPATH Files voru birt árið 2024, þar sem ljósi var varpað á samskipti lækna innan samtakanna, var Embætti landlæknis aftur spurt um WPATH.

Þá var svarið annað:

„Embætti landlæknis hefur engin tengsl við umrædd samtök.“

Nútíminn hefur tölvupóstana í heild sinni undir höndum.

Embættið benti jafnframt á að það veitti ekki sjálft þjónustuna og að Landspítala væri falin meðferð einstaklinga með kynáttunarvanda.

Það svar passar ekki við það sem embættið hafði sjálft staðfest árið áður, sem var að leiðbeiningar WPATH væru mikilvægur þekkingarfræðilegur grundvöllur þeirrar þjónustu sem veitt var hér.

Forseti WPATH stýrir transteymi Landspítalans

Tengslin við Ísland urðu enn nánari árið 2025 þegar Asa Radix var ráðin yfirlæknir transteymis Landspítalans.

Radix gegnir jafnframt embætti forseta WPATH.

Nútíminn fjallaði um ráðninguna í nóvember og vakti þá athygli á þeirri gagnrýni sem WPATH hafði þegar sætt vegna WPATH Files.

Forseti WPATH ráðin yfirlæknir transteymis Landspítalans – samtök sem sætt hafa mikilli gagnrýni

Samtökin hafa haft áhrif á fagleg viðmið sem íslensk heilbrigðisþjónusta hefur stuðst við og forseti þeirra stýrir nú sjálf transteymi Landspítalans.

Spurningin um ábyrgðina stendur eftir

LGB Samtökin kölluðu árið 2025 eftir svörum frá Embætti landlæknis um hvaða vísindalegi og þekkingarfræðilegi grundvöllur lægi að baki þjónustu transteymis barna og hvaða gögn styddu meðal annars notkun kynþroskahemla og krosshormóna.

Svar við því hefur ekki borist samkvæmt heimildum Nútímans.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing