Ýjar að því að íslenskir stjórnmálamenn gangi erinda erlendra samtaka til að fá þar góða stöðu í framtíðinni

Arnar Þór Jónsson, formaður Lýðræðisflokksins, varpaði fram á samfélagsmiðlum, gagnrýnni hugleiðingu um alþjóðavæðingu í íslenskum stjórnmálum og mögulega tengingu hennar við framtíðarstarf stjórnmálamanna.

Færslan beinist sérstaklega að Ásmundi Einari Daðasyni, fyrrverandi ráðherra og þeim hugleiðingum hans að snúa sér að ráðgjafastörfum hjá Sameinuðu þjóðunum.

Auglýsing

Í færslunni, sem birt var fyrr í vikunni, segir Arnar Þór meðal annars:
„Er mögulega eitthvert samhengi milli þess hvernig íslenskir stjórnmálamenn keppast við að innleiða hér heimsmarkmið SÞ (í stað þess að verja íslenska hagsmuni og íslenska menningu)… og þeirrar sjáanlegu þróunar að sömu stjórnmálamenn leiti skjóls hjá SÞ, ESB, Evrópuráðinu, WHO o.fl. eftir að stjórnmálaferillinn rennur út í sandinn?“

Arnar Þór lýsir því einnig hvernig hann telur íslenska stjórnmálamenn hafa í auknum mæli „gengisfellt Alþingi“ með því að afhenda vald til alþjóðlegra stofnana á borð við Evrópusambandið, NATO og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina.

Hann gagnrýnir þá þróun að íslenskir ráðamenn fylgi stefnum þessara aðila í stað þess að móta sjálfstæða stefnu út frá aðstæðum og hagsmunum Íslendinga.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing