today-is-a-good-day

Annar Íslendingur hefur greinst með COVID-19 kórónaveiruna

Maðurinn kom með flugi Icelandair frá Veróna á Ítalíu í gær og er á sextugsaldri. Um 180 manns voru í vélinni og hefur þeim öllum verið ráðlagt að fara í heimasóttkví.

Alls hafa 265 farið í heimasóttkví hér á landi vegna COVID-19 veirunnar. Von er á 180 Íslendingum frá Ítalíu á laugardag í næstu viku og verður þeim væntanlega öllum gert að fara í heimasóttkví. Auk þess eru tíu Íslendingar í sóttkví á hóteli á Tenerife og er ekki vitað hvenær von er á þeim til landsins.

Þetta kemur fram á vef rúv.is

Auglýsing

læk

Instagram