Ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi – ný skýrsla kynnt í beinu streymi

Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafarverkfræðinga kynna nýja skýrslu um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi í beinu streymi frá Norðurljósum í Hörpu á morgun miðvikudaginn 17. febrúar kl. 10.00-11.30.

Að streymi loknu er hægt að taka viðtöl í Hörpu fyrir framan Norðurljós við þátttakendur í dagskránni en virða þarf sóttvarnarreglur með grímu og 2ja metra reglu.

Skýrslan sem nú er gefin út byggir á sömu aðferðafræði og sömu innviðir eru metnir og í sambærilegri skýrslu samtakanna frá árinu 2017 en þá var í fyrsta sinn hér á landi gefin út heildstæð skýrsla um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi. Markmið með útgáfu skýrslunnar er að lýsa stöðu helstu innviða hagkerfisins og draga fram hvað þarf til að tryggja gæði þessara meginstoða íslensks samfélags. Í skýrslunni er lagt mat á endurstofnvirði og viðhaldsþörf, ástand innviðanna er metið og greint frá hverjar framtíðarhorfurnar eru.

Innviðirnir sem fjallað er um í skýrslunni eru flugvellir, hafnir, vegakerfi, fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuvinnsla, raforkudreifing og -flutningur, fasteignir ríkis og sveitarfélaga og úrgangsmál.

Dagskrá

  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Samantekt – Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
  • Fráveitur – Reynir Sævarsson, byggingarverkfræðingur hjá Eflu og formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga
  • Vegakerfi – Ásmundur Magnússon, byggingartæknifræðingur á samgöngusviði hjá Mannviti
  • Fasteignir ríkis og sveitarfélaga – Sverrir Bollason, skipulagsfræðingur hjá VSÓ
  • Umræður – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
  • Fundarstjórn – Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI

Hlekkur á streymið:

https://vimeo.com/event/683754

Auglýsing

læk

Instagram