Banaslys í Garðabæ

Umferðarslys varð á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis í Garðabæ í dag. Karlmaður á áttræðisaldri lést í slysinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Í tilkynningunni segir að maðurinn hafi verið að ganga yfir götuna þegar hann varð fyrir bifreið. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu en verið er að rannsaka tildrög slyssins.

Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið helgig@lrh.is.

Auglýsing

læk

Instagram