Barn á leiðinni

Hertogahjónin Meghan Markle og Harry prins eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau soninn Archie, sem verður 2 ára í maí.

„Við getum staðfest það að Archie er að verða stóri bróðir. Hertogahjónin af Sussex eru í skýjunum yfir því að eiga von á sínu öðru barni,“ segir talsmaður hjónanna við People

Hjónin stigu til hliðar frá konunglegum skyldum sínum á síðasta ári og fluttu til Bandaríkjanna, í von um eðlilegra fjölskyldulíf.

Auglýsing

læk

Instagram