„Því miður þurfum við að tilkynna frestun á bílabíóinu sem við hjá Smárabíó ætluðum að halda um helgina í samvinnu við Smáralind,“ segir í tilkynningu frá Smárabíó.
„Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir sem okkur ber að virða og höfum því ákveðið að fresta bílabíóinu fram á þriðjudag og miðvikudag (7. – 8. apríl). Okkur þykir þetta mjög leitt, en tókum ákvörðun til að tryggja öryggi og upplifun gesta okkar og starfsfólks. Við hlökkum svo til að sjá ykkur í bílabíó á þriðjudag og miðvikudag.“
Uppfærð dagskrá:
Það er frítt inn á samtals 4 sýningar!
þriðjudagur 7. apríl:
kl. 17:00 – Jón Oddur og Jón Bjarni
kl. 21:00 – Dalalíf
miðvikudagur 8. apríl:
kl. 17:00 – Jón Oddur og Jón Bjarni
kl. 21:00 – Löggulíf
Tjaldið verður sett upp á efra plani Smáralindar þar sem inngangur Smárabíós er.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar á Facebook viðburði hér.
Þar sem samkomubann er í gildi viljum við biðja gesti um að halda sér í bílunum á meðan sýningu stendur.
Vegna bannsins getum við ekki selt veitingar á staðnum og því hvetjum við ykkur til að taka með ykkar eigin.