Brekkusöngur með Ingó Veðurguð

Tveir vinsælustu tónlistarmenn landsins, þeir Helgi Björns og Ingó Veðurguð, verða í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans um verslunarmannahelgina.

Helgi Björns verður með verslunarmannahelgar útgáfu af Heima með Helga, þættinum sem hélt okkur svo eftirminnilega gangandi í gegnum skemmtanabannið í vetur og vor. Eins og áður er það leyndarmál hverjir eru gestir Helga í þessari tveggja daga seríu en þátturinn verður í beinni útsendingu frá Hlégarði laugardags- og sunnudagskvöld milli 20:00 og 21:30 

‍Það eru sem fyrr Reiðmenn vindanna sem fylgja Helga í hlað og koma öskuglaðir heim. Einnig verður álfadrottningin Vilborg Halldórsdóttir á sínum stað. Þá verður loksins hægt að grilla aspas úti og er mikil tilhlökkun í hópnum að fá nú smá sumar útgáfu af þessum skemmtilega mat. ,,Við ætlum að grilla fyrir bandið og gera smá sumarhátíð útúr þessu fyrir okkur. Það er tilhlökkun í hjörtum okkar að ,,hitta” þjóðina aftur, gleðjast og syngja saman,” segir Helgi sem hlotið hefur mikið lof og þakklæti fyrir útsendingarnar í vor.

Klukkan 22:00 á sunnudagskvöldið, að loknum þættinum Heima með Helga,tekur Ingólfur Þórarinsson “Ingó Veðurguð” boltann og telur í brekkusöng eins og hefð er fyrir á þessum tíma helgarinnar. Þó verður það nokkurn veginn það eina hefðbundna við brekkusönginn þetta árið því eins og alþjóð veit er þetta í annað skiptið í sögunni sem þjóðhátíð er frestað. 

‍Ingó á þjóðarhátíðarlagið í ár ,,Takk fyrir mig” sem á einhver fallegan hátt er orðið einkennislag fyrir hátíð sem ekki verður haldin en um leið þakklætissöngur til allra hátíðanna í gegnum árin sem sköpuðu bæði gestum og heimamönnum einstakar minningar.  Ingó mun senda brekkusönginn út af meginlandinu með tengingu við Vestmannaeyjar en útsendingin er unnin í samráði við Þjóðhátíðarnefnd sem með þessu sendir kveðjur sínar til landsmanna.

,,Við syngjum okkur bara í gegnum þetta sumar. Það verður skemmtileg áskorun að takast á við þetta en mér finnst fyrst og fremst gaman að geta tekið brekkusöng þetta árið þrátt fyrir að það sé með öðrum formerkjum en áður. Það verður allavega ekki minna gaman,” segir Ingó.

Auglýsing

læk

Instagram