Internetið fór næstum því á hliðina í gær þegar ein af þekktustu poppsöngkonum samtímans birti mynd af sér nakinni á strönd. Það var miðillinn TMZ sem greindi fyrst frá, en um er að ræða Britney Spears sem setti rósar-emoji yfir rasskinnar sínar til þess að hylja það allra heilagasta.
Samkvæmt TMZ birti söngkonan myndina á Snapchat. Enginn texti fylgdi færslunni, en myndin vakti strax athygli og var mikið deilt.

Seldi öll lögin sín
Birtingin kemur skömmu eftir að greint var frá því að Spears hafi selt allan lagakatalóg sinn. Samkvæmt BBC seldi hún réttinn að öllum sínum lögum til tónlistarútgefandans Primary Wave þann 30. desember fyrir um 200 milljónir dala, jafnvirði um 27 milljarða íslenskra króna.
Um er að ræða réttinn að lögum á borð við …Baby One More Time, Oops!… I Did It Again, Toxic og Gimme More. Hvorki fulltrúar Spears né Primary Wave hafa tjáð sig nánar um samninginn.
Sagðist aldrei snúa aftur
Spears, sem er 44 ára, hefur áður sagt að hún muni aldrei snúa aftur í tónlistariðnaðinn. Síðasta lag hennar var dúett með Elton John árið 2022.
Á sama tíma og hún kveður tónlistarheiminn með milljarða í vasanum virðist hún þó ekki hætt að ögra á samfélagsmiðlum. Nýjasta strandarmyndin fellur í sama farveg og fyrri birtingar hennar – óheft og án útskýringa.