Bryndís Ragna Hákonardóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hjá Icewear. Bryndís hefur áralanga reynslu í sölu- og markaðsmálum en hún starfaði áður hjá Veritas samsteypunni, m.a. sem sölu- og markaðsstjóri heilsuvöru deildar Artasan og sem sölu- og markaðsstjóri hjá Stoð.
„Ég er mjög spennt að vera hluti af öflugu teymi Icewear og fá tækifæri til að taka þátt í nýsköpun fyrirtækisins í gerð útivistarfatnaðar ásamt fjölmörgum öðrum spennandi verkefnum tengdum bæði innlendum og erlendum mörkuðum,“ segir Bryndís
Bryndís er útskrifaður viðskiptafræðingur frá American InterContinental University í Bandaríkjunum þar sem hún bjó og starfaði um árabil. Hún lærði næringarráðgjöf í Kaupmannahöfn þar sem hún útskrifaðist árið 2010 og vann við ráðgjöf tengdri heilsu og lífsstíl í Danmörku í tæpan áratug. Hún starfaði áður sem útflutningsstjóri hjá Kjötumboðinu með áherslu á uppbyggingu markaða í Norður Ameríku, Evrópu og Asíu og sem vörumerkjastjóri hjá Nóa Síríus fyrir innlendan og erlenda markaði.
Sem markaðsstjóri Icewear mun Bryndís bera ábyrgð á markaðsmálum fyrirtækisins og daglegum rekstri markaðsdeildar. Bryndís hóf störf hjá Icewear 1. nóvember sl.
„Það er mjög mikilvægt fyrir Icewear að fá Bryndísi með alla sína þekkingu og reynslu af markaðsstörfum inn í teymið og kraftar hennar munu klárega nýtast vel á þeirri hröðu vegferð sem Icewear er á með aukinni áherslu á nýsköpun og hönnun fyrir nýja markaði,“ segir Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Icewear.
Icewear hefur um árabil verið leiðandi á markaði með útivistarvörur til erlends ferðafólks og hefur nú undanfarin misseri sótt hratt fram í á íslenskum markaði með mjög góðum árangri. Verslanir Icewear á Íslandi telja í dag nítján auk vefverslunar sem selur vörur Icewear víða um heim. Mikil framþróun hefur átt sér stað hjá Icewear og er útivistarfatnaðurinn hannaður á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður.