Charlie Sheen: Krakk leiddi mig út í kynlíf með körlum

Charlie Sheen, 60 ára, opinberar nú áfallasögur úr fortíðinni í nýrri bók og Netflix-þáttaröð sem kallast Aka Charlie Sheen. Þar segir hann frá því hvernig neysla á krakki hafi leitt hann út í kynlíf með körlum – og hvernig hann hafi árum saman lifað í skömm og leynd.

„Ég fletti bara matseðlinum við og prófaði hitt megin,“ sagði hann í viðtali við People um ákvörðunina. „Sumt var skrýtið. Mikið af þessu var rosalega gaman. Og lífið heldur áfram.“

Auglýsing

Sheen viðurkennir að hann hafi greitt háar fjárhæðir til að halda þessum uppljóstrunum niðri, þar sem menn hafi tekið upp myndbönd og notað gegn honum. „Það fylgdi gíslataka – og það er skelfileg tilfinning,“ sagði hann.

„Það er f***ing frelsandi“

Leikarinn hefur nú verið edrú í átta ár og segir það hafa verið frelsandi að tala opinberlega um þetta í fyrsta skipti. „Það er f***ing frelsandi,“ segir hann í þáttaröðinni. „Enginn lest keyrði inn í veitingastaðinn, ekkert píanó féll af himnum ofan. Það gerðist bara ekkert.“

Sheen, sem varð heimsfrægur í Two and a Half Men en var rekinn úr þáttunum árið 2011 vegna fíknivanda, leggur áherslu á að hann sé ekki að biðja um vorkunn. Hann vill fremur að sagan sýni hvernig hann reyndi að gera upp við fortíðina og halda áfram.

Hann býr nú við rólegra líf með börnum sínum og segir rómantíkina ekki skipa stóra rullu lengur. The Book of Sheenkemur út 9. september og Aka Charlie Sheen verður frumsýnd á Netflix daginn eftir.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing