today-is-a-good-day

Dagur B. Eggertssson:„Hús­næði Adams og Evu er nú okk­ar!“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, greinir frá því á Twitter að borgarráð hafi samþykkt að kaupa hús­næði kyn­líf­stækja­búðar­inn­ar Adam og Evu á Klepps­vegi. Til stendur að breyta húsnæðinu og opna þar leikskóla.

„Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að kaupa hús. Ekki svo óalgengt en ég man ekki til þess að við höfum áður keypt hjálpartækjaverslun. Húsnæði Adams og Evu er nú okkar!“

Reyndar keyptum við húsnæði arkitektastofunnar við hliðina líka. Planið er andlitslyfting þessa gamla hverfiskjarna við Kleppsveg og innrétting nýs 120 barna leikskóla – fyrir Laugardal og hina nýju Vogabyggð. Sannarlega margar flugur í einu höggi!, skrifar Dagur í færslunni.

Auglýsing

læk

Instagram