Dead to me á Netflix

Leikkonan Christina Applegate leikur annað aðalhlutverkið í þáttunum Dead to me sem sýndir eru á Netflix.

Í þáttunum leikur hún Jen sem missir manninn sinn í bílslysi. Eftir missinn fer hún í hópmeðferðar tíma fyrir ekkjur og kynnist þar Judy (leikin af Lindu Cardellini) sem missti unnusta sinn úr hjartaáfalli. Konurnar tvær eru algjörar andstæður og sjá ólíkar hliðar í öllum kringumstæðum. Ekki er allt sem sýnist og mjög fljótlega fara ýmis leyndarmál að koma á yfirborðið.

Nýlega kom önnur þáttaröð af Dead to me inn á Netflix.

 

Auglýsing

læk

Instagram