Dýrið slær í gegn á Fantastic Fest í Texas

Kvikmyndin Dýrið sló í gegn á Fantastic Fest en hátíðin fór fram í Austin, Texas, dagana 23.-30.september sl.

Fantastic Fest er stærsta „genre“ kvikmyndahátíð í Bandaríkjunum og sérhæfir sig í hrylling, fantasíum, vísindaskáldskap og almennt geggjuðum myndum frá öllum heimshornum. Hátíðin fagnar krefjandi kvikmyndum sem hreyfa við fólki, fagnar nýjum röddum og nýjum sögum víðsvegar að úr heiminum og styður við nýtt kvikmyndagerðarfólk.

THE CINEMEN / Brian Taylor 

„Dýrið er bara WOW!  Best að vita ekkert og leyfa henni að trylla þig.“

 

CULTURALY RELEVANT PODCAST / David Chen 

„Dýrið er íhugul og fallega tekin kvikmynd sem lét mig efast um raunveruleika minn. Hún gengur fína línu alvarleika og kaldhæðni…en hún er ofboðslega einstök og ógleymanleg.“

DARK UNIVERSE / Jacob Harper 

„Dýrið er hjartnæm og einstaklega heillandi og óhugnanleg mynd. A24 tekst það aftur.“

 FREELANCE / COLLIDER / FULL CIRCLE CINEMA / Ernesto Valenzuela 

„Dýrið er listaverk. Ótrúlega hjartnæm en á sama tíma hrollvekjandi þökk sé magnaðri klippingu og leikstjórn. Það fór hrollur um mig allan við endirinn…einstaklega dáleiðandi upplifun.“

THE KINGCAST / Scott Wampler 

„Dýrið er eins og A24 hafi ætlað að gera mestu A24 mynd allra tíma en á sama tíma tókst þeim að gera ótrúlega góða mynd.“

 ROTTEN TOMATOES / Joel Meares 

„Ég var svo heppinn að sjá Dýrið – já, myndin með trailernum sem fríkaði alla út – og þetta er akkúrat mynd fyrir mig. Undarleg, svartur húmór, óþægilega hrollvekjandi…og Noomi er allt. Get ekki beðið eftir að sjá hana aftur.“

Dýrið er sýnd í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri.

Auglýsing

læk

Instagram