today-is-a-good-day

„Ég skil það mjög vel að fólk eigi erfitt með að vera agað“

„Aginn kemur bein­línis frá ást­ríðunni. Ég á auð­velt með að aga mig af því að ég elska það sem ég er að gera og veit hvert ég er að fara. Ég skil það mjög vel að fólk eigi erfitt með að vera agað ef því leiðist það sem það er að gera eða það vantar alla ást­ríðu. Aginn er þannig ekki per­sónu­ein­kenni.“

Þetta segir Nökkvi Fjalar Orra­son, en hann er nýjasti gesturinn í þættinum Pod­casti Sölva Tryggva­sonar og ræðir þar umdeildar skoðanir fólks um sig, agaða rútínu, lífið í London ásamt fleiru.

Nökkvi, eða Nikki eins og hann er kallaður í Bretlandi, er með rúmlega tíu þúsund fylgjendur á Instagram og er þekktur fyrir að deila jákvæðum og hvetjandi myndböndum og frösum á ýmsum fleirum samfélagsmiðlum.

Nökkvi fékk mikið um­tal á síðasta ári vegna um­ræðunnar um bólu­setningar vegna Co­vid. Hann á­kvað þá að svara fylgjanda sínum sann­leikanum sam­kvæmt og sagðist vera óbólu­settur. Í kjöl­farið voru gerðar margar fréttir og hann varð hálf­gert and­lit óbólu­settra á Ís­landi:

„Ég hef tamið mér það að segja alltaf satt og það var það sem ég gerði þarna. Mér finnst allt í lagi að fólk hafi ó­líkar skoðanir á þessu, en ég myndi endur­taka þetta ef ég gæti valið aftur. Það er bara satt um það að ég fór ekki í bólu­setningu og ætla ekki að byrja að ljúga,“ segir hann í hlaðvarpinu ofannefnda og heldur áfram:

„Það var mitt val og ég tek á­byrgð á því. En þó að margir hafi verið brjálaðir út í mig á sam­fé­lags­miðlum kom mikill fjöldi fólks upp að mér og hrósaði mér fyrir að þora að segja satt og standa með sjálfum mér. Líka fólk sem sjálft er bólu­sett og það fannst mér fal­legt.“

Auglýsing

læk

Instagram