Enn er leitað að piltinum sem féll í Núpá

Í dag hefur staðið yfir umfangsmikil leit að pilti sem lenti út í Núpá í Sölvadal í gær.

Mikill krapi hleðst upp hjá ánni sem getur runnið af stað með stuttum fyrirvara og hætta hefur skapast á leitarsvæðinu vegna þessa. Aðstæður til leitar eru mjög erfiðar vegna veðurs en útlit er fyrir betra veður á morgun.

Tilkynning frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra er svo hljóðandi:

Í dag hefur staðið yfir umfangsmikil leit að dreng sem lenti út í Núpá í Sölvadal í gærkvöldi. Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar hafa verið sleitulaust við störf síðan í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í nótt fleiri björgunarmenn og kafara norður og björgunarsveitir víðast hvar af landinu komu einnig akandi í morgun til aðstoðar. Meðal annars var notast við hunda til leitar meðfram ánni.

Hátt í 50-60 björgunaraðilar hafa verið við störf hverju sinni á vettvangi við leit og björgun og hefur þeim verið fjölgað jafnt og þétt yfir daginn eftir því sem fleiri björgunarsveitir hafa komið á svæðið. Meðal annars var fraktvél frá danska flughernum notuð til að flytja viðbótar búnað, björgunarsveitarmenn og menn frá Landhelgisgæslunni norður til Akureyrar til aðstoðar. Styrkur til leitarinnar jókst um 41 mann við það, en þörf var á sérhæfðum búnaði og sérhæfðum leitarmönnum til að skipta út fyrir þá sem höfðu staðið vaktina við hin ýmsu störf. Vélin sem kom frá Keflavík lenti á Akureyrarflugvelli nú seinnipart dags.

Alls hafa um 200 viðbragðsaðilar komið beint eða óbeint að leitinni í dag.

Aðstæður á vettvangi eru mjög krefjandi og lélegt skyggni á köflum. Vakta þarf ánna að hluta því að áin hleður upp krapa sem að getur síðan runnið síðan af stað með stuttum fyrirvara og þar með eykst straumurinn í ánni yfir það svæði sem leitað er á. Slíkt gerðist í eitt skipti rétt fyrir klukkan 18 og skapaðist þá ákveðin hætta en góð viðbrögð og viðvaranir urðu til þess að ekki hlaust slys af.
Aðgerðarstjórn tók ákvörðun að draga úr leit í ánni sjálfri í nótt en viðbragðsaðilar verða við leitarstörf við ánna í nótt og leit verður áframhaldið í fyrramálið af fullum krafti. Útlit er fyrir að betra veður verði á morgun til leitar.

Auglýsing

læk

Instagram