today-is-a-good-day

Erasmus+ samstarfsverkefni sem náðist að klárast þrátt fyrir covid

ERLENT samstarf skóla er mikilvægt í námi nemenda og ekki síður í skólaþróun. Er samstarfið þá oftast myndað á milli þriggja skóla frá þremur löndum í gegnum evrópska menntasjóði þar sem ákveðin umfjöllunarefni eru tekin til skoðunar. Í gegnum árin hefur FSu verið virkur þátttakandi í slíku samstarfi sem hefur opnað fjölmörgum nemendum aðgang að ólíkum löndum og fjarlægum menningarheimum.

Á árunum 2018 til 2021 tók FSu þátt í Erasmus+ verkefninu Inclusion by sport and culture þar sem samband íþróttiðkunar og menningar var skoðað. Farnar voru tvær ferðir, til Ítalíu og Tékklands, en því miður komst skólinn ekki í ferðina til Grikklands sem var hluti af verkefninu. Í ágúst 2021 endaði verkefnið á Íslandi. Þrátt fyrir að Covid hafi truflað verulega og lengt verkefnið um rúmlega ár var ákveðið að klára það með samantekt og menningarlegum ferðum um Ísland.

Aðspurð segir Eyrún Björg Magnúsdóttir umsjónarmaður erlends samstarfs við FSu það vera „þvílík forréttindi að fá að taka þátt í svona lærdóm með þessum krökkum og þvílíkur þroski og aukalærdómur sem þau öðlast í ferðunum. Nám leynist nefnilega víða.”

Með fréttinni fylgir fróðleg og skemmtileg síða með nemendaverkefnum úr verkefninu. SJÁ:

https://sites.google.com/…/eras…/meetings/czech-republic

Auglýsing

læk

Instagram