today-is-a-good-day

Eru að breyta banka í bar

Framkvæmdir standa nú yfir í húsinu sem áður hýsti Arion Banka, í miðbæ Mosfellsbæjar.

En félagarnir Sigmar Vilhjálmsson og Vilhelm Einarsson ætla að breyta gamla bankanum í bar. Þannig mun Arion breytast í Barion.

„Hér mun opna sportbar, hverfisbar, veitingastaður eða hvernig sem við viljum orða það. Við erum að búa til félags­heimili fullorðna fólksins. Þetta verður ekki beint mathöll en alla vega tveir matsölustaðir á einum stað og Hlölli hluti af því. Við munum bjóða upp á steikur, salöt, rif, borgara og almennt góðan mat.“

„Þetta verður skemmtilegur staður til að hittast á og horfa leiki eða stóra viðburði. Við verðum með fjóra risaskjái í tveimur hljóðrýmum. Þá verður svið á staðnum fyrir uppákomur. Hér verður líka hægt að koma með alla fjölskylduna og fara út að borða.
Við höfum stækkað rýmið til að koma öllu fyrir en alls munu komast 140 manns í sæti. Hér er ekki verið að tjalda til einnar nætur en stefnt er að því að opna Barion á næstu vikum.“ sögðu þeir félagar í spjalli við Mosfellingur.is.

Sigmar segir gömlu bankahvelfinguna hafa verið flókna að vinna sig í gegnum. „Það voru hér sjö menn í fimm daga þegar mest lét að bora og brjóta niður. Það er ekki til steinsög sem ræður við þetta þannig að þetta var erfiðasta verkið hingað til. Við reynum þó að halda í einhverjar minningar sem gefa staðnum ákveðinn sjarma.“

En þeir félagar eru ekki nýjir í veitingabransanum og hafa komið víða við, nú síðast ráku þeir saman Shake&Pizza í Keiluhöllinni.

Auglýsing

læk

Instagram