Eva Laufey birti ein­læg­an ára­móta­ann­ál á Instagram:„Ég get aldrei fullþakkað hvað ég á góða að“

Sjón­varps­stjarn­an Eva Lauf­ey Kjaran birti ein­læg­an ára­mótaann­ál á In­sta­gram á ný­árs­dag. Hún segir árið 2019 hafa verið lærdómsríkt en ekki áfallalaust.

„Þetta ár var líka mjög krefj­andi fyr­ir mig þar sem ég eyddi stór­um hluta árs­ins að finna mig upp á nýtt eft­ir óþægi­lega lífs­reynslu í mars þegar ég hélt að ég væri að fá hjarta­áfall. Eft­ir marg­ar rann­sókn­ir og ófá­ar spít­ala­heim­sókn­ir var niðurstaðan ein­fald­lega sú að lík­am­inn væri að biðja um meiri ró og and­lega hliðin væri í ólagi. Kvíði og streita kom mjög aft­an að mér og það var ekki auðvelt að sætta sig við það þegar allt „á“ að vera í lagi og maður upp­lif­ir sig svo van­mátt­ug­ann. Ég gat lengi vel ekki hreyft mig eins og ég vildi út af verkj­um og hræðslu við of mik­inn hjart­slátt, ég þurfti að stoppa sjón­varps­upp­tök­ur og anda í poka með hjálp sam­starfs­fólks til þess að koma mér í gegn­um verk­efn­in. Mig langaði að hrista þetta af mér í ein­um græn­um en það gekk ekki og ég fór loks­ins og fékk viðeig­andi aðstoð. Nú mörg­um mánuðum seinna og sál­fræðimeðferð að baki líður mér loks­ins eins og ég sjálf á ný – það er besta til­finn­ing sem ég hef fundið í lang­an tíma. Mér tókst að kom­ast í gegn­um þetta verk­efni með fag­fólki, fjöl­skyld­unni minni og vin­um mín­um sem hafa staðið þétt við bakið á mér sem og skiln­ings­ríku sam­starfs­fólki og yf­ir­mönn­um. Ég get aldrei fullþakkað það hvað ég á góða að,“ skrif­ar Eva Lauf­ey

Hér fyrir neðan má lesa pistil Evu í heild sinni.

View this post on Instagram

Árið 2019 var mjög lærdómsríkt ár. Ég er einni háskólagráðu ríkari, vann að skemmtilegum verkefnum í vinnunni og hér á samfélagsmiðlum. Hadda mínum gengur vel í sínu starfi. Við ferðuðumst mikið á árinu bæði innan- og utanlands. Stelpurnar okkar héldu okkur laglega við efnið og við sjáum ekki sólina fyrir þeim. Ég ákvað að skrifa eina matreiðslubók og ég lét einnig langþráðan draum rætast og skráði mig á námskeið í Le Cordon Bleu í London. Þetta ár var líka mjög krefjandi fyrir mig þar sem ég eyddi stórum hluta ársins að finna mig upp á nýtt eftir óþægilega lífsreynslu í mars þegar ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall. Eftir margar rannsóknir og ófáar spítalaheimsóknir var niðurstaðan einfaldlega sú að líkaminn væri að biðja um meiri ró og andlega hliðin væri í ólagi. Kvíði og streita kom mjög aftan að mér og það var ekki auðvelt að sætta sig við það þegar allt „á“ að vera í lagi og maður upplifir sig svo vanmáttugann. Ég gat lengi vel ekki hreyft mig eins og ég vildi út af verkjum og hræðslu við of mikinn hjartslátt, ég þurfti að stoppa sjónvarpsupptökur og anda í poka með hjálp samstarfsfólks til þess að koma mér í gegnum verkefnin. Mig langaði að hrista þetta af mér í einum grænum en það gekk ekki og ég fór loksins og fékk viðeigandi aðstoð. Nú mörgum mánuðum seinna og sálfræðimeðferð að baki líður mér loksins eins og ég sjálf á ný – það er besta tilfinning sem ég hef fundið í langan tíma. Mér tókst að komast í gegnum þetta verkefni með fagfólki, fjölskyldunni minni og vinum mínum sem hafa staðið þétt við bakið á mér sem og skilningsríku samstarfsfólki og yfirmönnum. Ég get aldrei fullþakkað það hvað ég á góða að. Engu að síður hefur þetta ár hefur mögulega líka verið besta árið í mínu lífi því nú veit ég nákvæmlega hvað vil, ég er búin að fara í gegnum svo mikla vinnu við að forgangsraða, kasta út því ekki skiptir máli og einblína á það sem gefur mér og gleður mig. Ég er þess vegna sterkari sem aldrei fyrr og mér líður eins og ég geti tekist á við hvað sem er eftir að hafa komist í gegnum þetta tímabil. Vinnan er þó aldrei fullunnin en nú veit ég hvað það er mikilvægt að hlusta á líkamann og fara ekki fram úr sér, stoppa aðeins við og njóta þess sem ég hef❤️

A post shared by Eva Laufey Kjaran (@evalaufeykjaran) on

Auglýsing

læk

Instagram