Fékk blóðtappa og mundi ekki nöfn barnanna sinna

Sigga Beinteins söngkona eignaðist tvíbura með fyrrverandi konu sinni, Birnu Maríu, þegar hún var 49 ára. Eftir endalausar svefnlausar nætur í mörg ár og álag í vinnu, fékk Sigga blóðtappa sem hafði meðal annars þær afleiðingar að hún mundi ekki nöfn barnanna sinna.

„Ég held að það sé töluvert álag að fara út í barneignir svona seint,“ segir Sigga. Hún ræddi málin í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Sigga hefur nú tekið líf sitt í gegn, stundar líkamsrækt, breytti um mataræði og passar upp á svefninn.

„Ég átti í rauninni að vera orðin amma þarna. Það sem veldur þessu álagi og streitu var að tvíburarnir voru alltaf vakandi á sitthvorum tímanum og voru erfið með svefn. Þau voru ekki að sofa nóg. Síðan gerist það að hún fær þessa magakveisu sem börn fá oft og hann er eyrnabarn. Þetta var því ofboðslega lítill svefn hjá okkur báðum þangað til þau voru svona fjögurra, fimm ára.“

Meðfram barnauppeldinu var hún að koma fram allar helgar. Segir hún að læknirinn hafi tilkynnt henni að ef hún myndi ekki breyta um lífstíl myndi hann senda hana í hvíldarinnlögn á Reykjalund.

„Ég lofa henni því að breyta til, nema maður heldur bara áfram og keyrir sig út. Þangað til í september 2015, þá keyrði ég bara á vegginn. Ég vakna einn morguninn og er eitthvað miklu meira þreytt en venjulega. Ég kem börnunum á leikskólann og ætla leggja mig aðeins. Eftir nokkrar mínútur segi ég við sjálfan mig að hætta þessu bulli og fara að vinna. Drífa sig í tölvuna og byrja að vinna og hætta þessu bulli, þetta er bara helvítis leti. Ég geri það og fer að vinna í tölvunni. Finn samt þessa gífurlegu þreytu,“ og þá hringir systir hennar, sem er hjúkrunarfræðingur, frá Noregi.

„Ég er eitthvað að tala við hana og allt í einu ræð ég ekki við orðin sem ég er að segja. Ég gat ekki stjórnað orðunum og það komu enginn orð út úr mér. Eftir nokkrar mínútur fer ég að detta inn aftur. Þá fær systir mín mig til að tala um eitthvað annað og við ræðum um mataruppskriftir. Ég fer að tala um einhvern pastarétt og þá kemur bara orðið þvottavél út úr mér. Þá segist hún ætla hringja í mig eftir smá stund aftur. Hún vildi ekki hræða mig. Þá gerist það að ég fæ alveg gígantískan höfuðverk. Ég fæ mér bara parkódín og ákveð að láta renna í bað. Nema hausverkurinn fer ekki. Ég hafði áður lesið mig til um blóðtappa og ákveð þarna að hringja upp á bráðadeild. Mér er sagt að ég verði að koma strax og þá er ég sett í allskonar rannsóknir. Svo kemur taugalæknir og talar við mig og spyr mig allskonar spurninga,“ segir Sigga. „Ég gat með engu móti munað hvað börnin mín hétu, hvorugt þeirra. Ég mundi það bara nokkru seinna og þá sagði hann að það þyrfti að gera fleiri rannsóknir.“

Hér fyrir neðan má sjá innslagið með Siggu í heild sinni.

Auglýsing

læk

Instagram