Flogið verður til sex borga í upphafi

Floti flugfélagsins Play mun í byrjun telja tvær flugvélar. Þær munu fljúga til Alican­te, Berlín­ar, Kaup­manna­hafn­ar, London, Par­ísar og Tenerife.

Í maí á næsta ári er svo stefnt að að fjölga vélum félags­ins í sex. Ári síðar eiga þær að vera orðnar átta og frá maí­ mán­uði 2022 tíu tals­ins. Áfangastöðum mun fjölga og og flug hefjast til Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu félagsins sem Kjarninn hefur undir höndum.

Sala á flugferðum mun hefjast um leið og flugrekstrarleyfi Play verður komið í hús, en það mun gerast þegar félagið hefur lokið hlutafjármögnun sinni, sem felst í því að sækja 1,7 milljarð króna til íslenskra einkafjárfesta. Samkvæmt kynningunni er þegar búið að landa afgreiðslutímum á þeim flugvöllum sem flogið verður til. Þá hefur einnig verið samið um fast verð á eldsneyti fyrsta hálfa ár félagsins í rekstri.

Arn­­­ar Már Magn­ús­son er for­stjóri Play. Auk hans verða þeir Sveinn Ingi Stein­þór­s­­­­son, sem verður fjár­­­­­­­mála­­­­stjóri, Bogi Guð­­­­munds­­­­son, sem mun halda utan um sölu-, mark­aðs- og lög­­­­fræð­is­við­ið, og Þóróddur Ari Þór­odds­­­­son, sem verður titl­aður meið­eig­andi, í stjórn­­­enda­teymi félags­­­ins. Þeir munu auk þess eiga stóran hlut í félag­in­u.

Þetta kom fram á vef Kjarnans.

Auglýsing

læk

Instagram