Formaður Eflingar hvetur fólk til að láta í sér heyra í dag

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar birti færslu á facebook í dag þar sem hún hvetur fólk til að sýna lokunum engan skilning í dag.

Í færslu sinni kallar hún Mike Pence bæði stríðæsingamann og mannhatara.  En Pence er væntanlegur til landsins núna rétt eftir hádegi í dag. Mikill viðbúnaður er hjá lögreglu vegna komu hans og götur borgarinnar margar lokaðar.

„Ég hvet fólk til að láta í heyra sér með öllum mögulegum hætti til þess að þessi ömurlegi maður og þær manneskjur sem í alvöru trúa því að ekkert skipti máli nema viðskiptahagsmunir, að ekkert skipti máli nema greddan í að græða fái í það minnsta skilaboð um að “gildismat” þeirra valdi viðbjóði og andstyggð hjá sæmilega normölu fólki.“

Auglýsing

læk

Instagram