Handritshöfundurinn Graham Linehan, sem skapaði Father Ted og The IT Crowd, var nýverið tekinn úr flugvél á Heathrow flugvelli af fimm vopnuðum lögreglumönnum. Ástæðan: færslur á samfélagsmiðlum þar sem hann tjáði sig um transfólk og baráttuna fyrir einkarýmum kvenna. Hann segir að Bretland sé að breytast í land þar sem frelsi til tjáningar er undir árás og að hann hafi sjálfur greitt gríðarlegt verð fyrir afstöðu sína.
„Handtekinn eins og hryðjuverkamaður“
Linehan lýsti því á Substack-bloggi sínu að hann hafi verið færður í einangrun, beltið tekið af honum og símar og tölvur gerðar upptækar. „Ég var handtekinn eins og hryðjuverkamaður, lokaður inni eins og glæpamaður og bannað að tala á netinu,“ sagði hann.
Færslan sem olli handtökunni
Ein af færslunum sem lögreglan vísaði til hefur vakið sérstaka athygli. „If a trans-identified male is in a female-only space, he is committing a violent, abusive act,“ skrifaði Linehan í einni þeirra, með beinni vísun í trans konur. Hann bætti við: „Make a scene, call the cops and if all else fails, punch him in the balls.“
Auk þess deildi hann mynd af mótmælum með textanum „mynd sem þú getur fundið lykt af“ og skrifaði í annarri færslu: „Ég hata þá. Kvenhatara og hommahatara. Fokkið þeim.“
Ferillinn hrundi – hjónabandið líka
Afstaða Linehan gegn trans-ídeólógíu hefur verið honum mjög kostnaðarsöm. Glæsilegur ferill hans sem farsæll handritshöfundur hefur orðið að engu, hjónabandið brast árið 2020 og margir gamlir vinir sneru baki við honum. Fyrrum eiginkona hans, Helen Linehan, sem hann skrifaði Motherland með, varð sjálf fyrir hótunum og aðkasti á netinu.
„Ég missti allt: vinnuna, fjölskylduna og orðspor mitt – bara fyrir það eitt að segja að konur eigi rétt á sínu eigin rými,“ sagði Linehan.
Nigel Farage og þingnefnd í Washington
Atvikið hefur vakið mikla athygli, meðal annars hjá stjórnmálamanninum Nigel Farage sem kallaði handtökuna „fáránlega árás á málfrelsi“. Þá hefur verið staðfest að Linehan muni bera vitni fyrir þingnefnd í Washington um stöðu tjáningarfrelsis í Bretlandi. Myndskeið úr vitnisburði Nigel Farage fyrir sömu nefnd fylgir hér að neðan.