today-is-a-good-day

Greipur Hjaltason er Íslandsmeistari í uppistandi

Greipur Hjaltason er Íslandsmeistari í uppistandi en tíu frábærir uppistandarar kepptu um titilinn í gærkvöldi í Háskólabíói. Í öðru sæti var Anna Lilja Björnsdóttir og í þriðja sæti var svo Iddi Biddi eða Ingi Björn Róbertsson. Greipur hlaut 500.000,- krónur í fyrstu verðlaun og titilinn „Íslandsmeistari í uppistandi 2020“

Greipur byrjaði að koma fram á open mic kvöldum hjá uppistand.is fyrir 5 árum, svo kom hann fram á Gauknum í gegnum Goldengang Comedy á hverjum mánudegi í 4 ár.

„Áhuginn kom bara því ég vissi að ég gæti þetta og vantaði eitthvað til að stefna að. Að koma fullum sal af fólki er að sjálfsögðu gaman en craftið sjálft, þ.e.a.s. púsla orðunum saman og búa til bita, brandara eða bara súra setningu sem er fyndin, það er það sem ég elska.“ segir Greipur.

Fjöldi þekktra skemmtikrafta var í salnum í gærkvöldi og meðal annars mátti sjá Jón Gnarr en Jón kynnti keppnina fyndnasti maður Ísland árið 1998 þegar sú keppni var fyrst haldin. Þá var Ari Eldjárn meðal gesta í kvöld og lofaði framtakið og fagnaði en Ari er einn vinsælasti uppistandari sem Ísland á.

Kynnar keppninnar voru þau Kjartan Atli Kjartansson og Júlíana Sara Gunnarsdóttir.

Dómefndina skipuðu þau Logi Bergman Eiðsson, Fannar Sveinsson, Gummi Ben, Pálmi Guðmunds hjá Símanum og Steinunn Camilla Sigurðardóttir hjá umboðsskrifstofunni Iceland Sync og Ragna Gestsdóttir hjá Mannlíf.

Auglýsing

læk

Instagram