today-is-a-good-day

Gunnar tapaði fyrir Burns í kvöld

Gunnar Nelson tapaði fyrir brasilíumanninum Gilbert Burns á bardagakvöldi UFC í Kaupmannahöfn nú í kvöld. Eftir þrjár lotur gáfu allir þrír dómarar bardagans Burns 29 stig og Gunna 28.

Burns byrjaði aggressívt en Gunnar tók því með miklu jafnaðargeði. Gunnar kláraði fyrstu lotuna mjög vel þegar hann kom sér í góða stöðu eftir tilraun að fellu frá Burns.

Í annarri lotu hélt Burns áfram að sparka í Gunnar en Gunnar náði þó góðu höggi og árás og kom Burns í hornið. Í lok annarrar lotu náði Burns svakalegu hnéhöggi í andlitið á Gunnari, en Gunnar lét það ekki mikið á sig fá.

Í þriðju lotu var Burns svo með augljósa yfirburði og kláraði á virkilega sterkri fellu.

Bardaginn fór í dómaraúrskurð og var hann einróma, Burns sigraði.

Þetta kom fram á vef Vísis.

Auglýsing

læk

Instagram