today-is-a-good-day

Helgi Björns og félagar verða með breyttu sniði í kvöld

Helgi Björns og félagar verða með breyttu sniði í kvöld en sýnt verður brot af því besta úr liðnum þáttum.
Einn af gestum kvöldsins hefur verið sendur í sóttkví og því var ákveðið að senda Helga Björns, Reiðmenn vindanna og starfsfólk þáttanna í úrvinnslusóttkví á meðan óljóst er hvað tekur við.
„Fyrst og fremst vildum við fara að öllu með gát. Það er ekki ástæða til að óttast neitt en full ástæða til að fara varlega. Það kemur í ljós á næstu sólarhringum hvernig þetta þróast. Þangað til og eins og alltaf þá er bara að hlýða Víði,” segir Helgi sjálfur.

„Við vorum búin að búa okkur undir að þessi staða gæti komið upp og við erum með viðbragðsáætlun sem var virkjuð núna um 11:30 í morgun, nokkrum mínútum eftir að við fengum þessar fréttir,” segir Pálmi Guðmundsson dagskrárstjóri Sjónvarps Símans. Eins og fram kom að ofan verður þátturinn á sínum tíma en ólíkt lifandi útsendingu verða send brot af bestu flutningum Helga og gesta hans, það sem af er hausti.

Auglýsing

læk

Instagram