Hjóla­söfn­un Barna­heilla

Hjóla­söfn­un Barna­heilla – Save the Children á Íslandi hófst í níunda sinn þann 19. mars 2021

Söfn­un­in stend­ur yfir til 1. maí nk. og hefjast út­hlut­an­ir á hjólum í apríl og standa fram í maí.

Hjól­in verða gef­in börn­um og ung­ling­um sem ekki hafa tök á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt verður að sækja um hjól í gegnum fé­lagsþjón­ustu sveit­ar­fé­lag­a.

Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Sorpu á Dalvegi í Kópavogi, Breiðhellu í Hafnarfirði, Sævarhöfða, Ánanaustum og Jafnarseli í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ. Sjálfboðaliðar munu gera hjólin upp undir styrkri leiðsögn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum áður en þau verða afhent. Verkefnið hefur mjög breiða samfélagslega skírskotun þar sem það eflir þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu.

Þetta er í tíunda sinn sem hjólasöfnunin fer fram en hún er unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT, Sorpu og ýmsa aðra velunnara.

Rúmlega 2500 börn hafa notið góðs af hjóla­söfn­un Barna­heilla frá því henni var fyrst hrundið af stað árið 2012.

Hægt er að fylgj­ast með verk­efn­inu á Face­book síðu söfn­un­ar­inn­ar og einnig er hægt að skrá sig þar til þátt­töku í sjálf­boðaliðastarf fyr­ir hjólaviðgerðir.

Auglýsing

læk

Instagram