Leikarinn Harrison Ford fagnaði á dögum 10 ára brúðkaupsafmæli með eiginkonu sinni, Calista Flockhart en þau hafa verið saman í um 18 ár.
Ford sagði í viðtali á dögunum að besta ráðið sem hann hafi lært á sambandi sínu við Flockhart, ráð sem hann vildi miðla til annarra, væri að tala ekki.
„Ekki tala, kinkaðu bara kolli,“ sagði leikarinn.
Flockhart sagði í viðtali fyrir nokkrum árum að það sem hafi haldið þeim saman öll þessi ár sé hversu mikið þau hlæja saman.
„Við Harrison hlæjum mikið saman, húmor er mér allt.“