today-is-a-good-day

Hlaupum hraðar – slítum fjötrana og sækjum tækifærin!

Ný skýrsla og bein útsending frá Iðnþingi 2021 í dag kl. 13.00-15.00.

Hlaupum hraðar – slítum fjötrana og sækjum tækifærin er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem sent verður beint út frá Silfurbergi í Hörpu í dag 4. mars kl. 13.00-15.00. Samhliða þinginu er gefin út skýrsla með sömu yfirskrift þar sem samtökin leggja fram 33 tillögur að umbótum sem miða að því að hraða uppbyggingu. Skýrslan er meðfylgjandi með embargoi til kl. 13.00 í dag.

Vegna samkomutakmarkana verður Iðnþingið í beinni útsendingu í stað fjölmenns viðburðar.

Á Iðnþingi 2021 verður kastljósinu beint að þeim fjötrum sem slíta þarf með markvissum hætti á næstu 12 mánuðum til að fyrirtæki geti skapað ný, eftirsótt störf og aukin verðmæti. Sækja þarf tækifærin með frekari umbótum og markaðssókn til að skapa auknar gjaldeyristekjur. Með því að slíta fjötrana getum við hlaupið hraðar.

Dagskrá

  • Fundarstjórn – Logi Bergmann
  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Ávarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Eflum samkeppnishæfni – umræður – Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, Orri Hauksson, forstjóri Símans, og Tor Arne Berg, forstjóri Fjarðaáls
  • Hröðum uppbyggingu – umræður – Ásdís Helga Ágústsdóttir, arkitekt hjá Yrki, Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, Hjörtur Sigurðsson, framkvæmdastjóri VSB, Sigrún Melax, gæðastjóri JÁVERK, og Svanur Karl Grjetarsson, framkvæmdastjóri Mótx
  • Sækjum tækifærin – umræður – Fida Abu Libdeh, forstjóri GeoSilica, Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, Lilja Ósk Snorradóttir, framkvæmdastjóri Pegasus, og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Hlekkur á beinu útsendinguna

https://vimeo.com/event/726019

Auglýsing

læk

Instagram