Hollt fæði og hreyfing gæti verið skylda eins og grímur og handspritt – ,,Heilbrigðiskerfið ætti að heita sjúkdómakerfi“

Evert Víglunds, stofnandi og eigandi Crossfit Reykjavík er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Hann hefur í áraraðir hjálpað Íslendingum að bæta heilsu sína og er með sterkar skoðanir þegar kemur að þeim hlutum.

,,Heilbrigðiskerfið ætti náttúrulega að heita sjúkdómakerfið. Það er meira réttnefni. 80% af kostnaði heilbrigðiskerfisins er vegna lífsstílssjúkdóma. Það þyrfti að koma öllu sem snýr að heilsu og heilbrigði mun meira inn í menntakerfið. Þekkingin á líkamanum og hvernig hann virkar er orðin það mikil að við getum mjög oft auðveldlega gripið inn í áður en fólk verður veikt. En það sem verið er að gera núna er að grípa eingöngu inn í eftir að fólk er orðið veikt, sem fyrir mér er algjörlega brengluð leið. Ef fólk sinnir svefninum sínum, næringu og hreyfingu vel á það að vera algjör undantekning að fólk sé veikt, en það er bara alls ekki þannig því miður. Ég hef persónulega engan áhuga á því að lifa lengi og vera veikur síðustu áratugina. Við þurfum að breyta umræðunni þannig að þetta snúist ekki bara um að lengja lífaldur, heldur að bæta heilbrigði við árin sem við lifum.“

Evert er á því að Covid tímabilið gæti gefið okkur tækifæri til þess að bæta heildarheilsu allra, ef tekin væri ákvörðun um það.

,,Nú eru allir í heiminum með grímur og að spritta hendurnar. Af hverju getum við ekki sagt öllum í heiminum að hreyfa sig, borða hollan mat og hugsa um svefninn? Það hefur sýnt sig í nánast öllum löndum heims að fólk virðist hlýða fyrirmælum. Það væri hægt að setja tilmæli til heilbrigðisráðherra um að skylda fólk til að sinna heilsu sinni. Við eigum enn eftir að sjá afleiðingarnar af því hvernig lífsstíll fólks hefur versnað. Fólk er meira inni, það hefur aldrei selst meira af áfengi og að meðaltali er óholl matvara á leiðinni upp í sölu. Það væri hægt að setja upp hóp sem myndi skila minnisblaði um heilsu, sem ríkisstjórnin myndi síðan fara yfir og samþykkja eftir því sem við ætti. Það langar alla að vera heilbrigðir.“

Evert átti, eins og aðrir eigendur líkamsræktarstöðva, vægast sagt skrýtið ár í fyrra.

,,Rekstarlega séð er mitt fyrirtæki á góðum stað. Við höfum verið skynsöm og ef ég ætti að kenna einhverjum eitthvað sem er að fara í rekstur, væri það að byrja smátt og leyfa rekstrinum að vaxa. Frekar en að taka einhver bankalán og fara fram úr sér. En auðvitað er erfitt þegar lokað er bara á stærsta hlutann af tekjunum. Það renna að jafnaði 800 manns í gegnum stöðina á hverjum degi og nú er það bara ekki neitt. Svo komu líka gífurlega margir túristar í stöðina sem keyptu vörur og þjónustu. Það sagði mér einhvern tíma leigubílstjóri að Crossfit Reykjavík væri næstvinsælasti staðurinn fyrir túrista í borginni á eftir Hallgrímskirkju. Það var yfirleitt fullt hús af útlendingum og biðraðir í tíma hjá erlendu fólki. Það vita allir í Crossfit-heiminum af stöðinni. Ég held að það sé út af Annie Mist, sem er klárlega fyrsta ofurstjarnan í íþróttinni í heiminum.“

Evert byrjaði með Crossfit Reykjavík áður en Crossfit var orðið þekkt fyrirbæri og fyrst um sinn þurfti að hafa verulega mikið fyrir því að halda starfseminni gangandi.

,,Ég og Hrönn, sem byrjuðum með fyrirtækið eftir að hún hafði verið með aðstöðu í bílskúrnu hjá sér, gengum í öll störf og mættum hálfsex á morgnana og vorum að skúra hálftíu á kvöldin. Það var þannig í allavega tvö ár og það var ekki verið að greiða mikil laun. Þeir sem hafa byrjað eitthvað alveg frá grunni þekkja að fara í gegnum svona tímabil. Og okkar nálgun var frá byrjun sú að það voru alltaf allir velkomnir frá byrjun og það var nálgunin okkar. Crossft er rándýrt fyrirbæri í Bandaríkjunum og á mörgum öðrum stöðum og í raun munaðarvara og við vildum alls ekki fara þá leið.“

Evert, sem er þekktur fyrir að vera mikill heilsupælari og hefur hjálpað fólki að bæta heilsu sína í áratugi, segist sjálfur vera byrjaður að hugsa meira um langlífi. Borða minna og sjaldnar, hlúa vel að svefninum og öllu sem heitir endurheimt.

,,Afreksíþróttr draga frekar úr langlífi heldur en hitt og geta í raun verið heilsuspillandi ef fólk er komið á hæsta ,,level“ og er að leggja óhóflega mikið á líkamann. Langlífi og afreksíþróttir eru upp að vissu marki andstæður.“

Í þættinum fara Evert og Sölvi yfir það hvað það er að vera heilbrigður, hvaða skref er hægt að taka ef fólk vill breyta um stefnu, hver eru algengustu mistökin og margt margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:

 

Auglýsing

læk

Instagram