today-is-a-good-day

Hvítur, hvítur dagur vann þrenn verðlaun um helgina á Ítalíu

Um helgina vann kvikmynd okkar HVÍTUR, HVÍTUR DAGUR þrenn verðlaun á hinni virtu Torino kvikmyndahátíð í Ítalíu.
Hátíðin var haldin í 37.sinn frá 22-30.nóv og var klippari myndarinnar, Julius Krebs Damsbo, viðstaddur hátíðina og tók á móti verðlaununum fyrir hönd myndarinnar.

Myndin vann aðalverðlaun hátíðarinnar og þar með verðlaunafé að upphæð 18.000 evrur, ca. 2,4.mill ISK. Einnig vann myndin AVANTI! verðlaunin sem gefa myndinni betri dreifingu í Ítalíu, og sérstaka dómnefndarviðurkenningu fyrir besta handrit.

Hvítur, hvítur dagur er þar með komin upp í 12 verðlaun frá frumsýningu sinni í Cannes. Mikið ferðalag er einnig framundan hjá myndinni en hún kom nýlega í kvikmyndahús í Noregi og Sviss, og mun hefja sýningar í Danmörku núna 5.desember.

Auglýsing

læk

Instagram