Iðnþing 2020 í beinni útsendingu frá Hörpu í dag

Nýsköpun er leiðin fram á við er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem sent verður beint út frá Silfurbergi í Hörpu í dag föstudaginn 18. september kl. 13.00-14.30. Vegna samkomutakmarkana verður Iðnþing að þessu sinni í beinni útsendingu í stað fjölmenns viðburðar. 

Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins nú þegar þörf er á viðspyrnu í efnahagslífinu. Á Iðnþingi 2020 verður kastljósinu beint að því hvernig við mætum áskorunum um fjölgun nýrra starfa. Þar gegnir nýsköpun veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum. Tækifærin liggja víða og á þinginu verður horft til þess hvernig nýsköpun getur drifið vöxt framtíðar.

Dagskrá

  • Fundarstjórn – Logi Bergmann
  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
  • Áskorun um fjölgun nýrra starfa – Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
  • Ávarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Umræður – Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI, Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV, Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, og Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Á milli dagskrárliða er vitnað til orða nokkurra forkólfa í íslenskum iðnaði.
Auglýsing

læk

Instagram