Íslenski söngvarinn Stony leikur í bandarísku lögfræðidrama

Þorsteinn Sindri Bald­vins­son,betur þekktur sem Stony, landaði á dögunum hlutverki í nýj­um lög­fræðiþátt­um á banda­rísku sjón­varps­stöðinni NBC.

Þættirnir heita Bluff City Law og í þáttunum fer hann með hlutverk aðstoðarmanns lögfræðinga á stórri lögfræðistofu.

Stony vakti fyrst athygli erlendis þegar hann lenti í öðru sæti í ábreiðukeppni Ryan Seacrest með sinni eigin útgáfu af lag­inu „Can’t Hold Us“ með Macklemore. Í framhaldi af því fékk hann aðalhlutverkið í Pepsi auglýsingu sem gerð var fyrir heimsmeistaramót karla í fótbolta.

Hann talar lýtalausa ensku og segist hafa lært mest af sjónvarpsþáttunum Seinfeld og Friends. Hann hefur farið með nokkur hlutverk táningsdrengja í gegnum árin og segist glaður með að leika núna persónu sem er eldri en 17 ára. Fyrsti þátt­ur­inn af Bluff City Law verður sýnd­ur á mánu­dag­inn næst­kom­andi og hef­ur NBC gert samn­ing upp á 15 þætti til viðbót­ar. Þetta kom fram á vef Mbl.

Hér fyrir neðan má sjá Pepsi auglýsinguna sem hann lék í um árið.

Auglýsing

læk

Instagram