Leikarinn Jim Carrey vakti mikla athygli þegar hann mætti á César-verðlaunahátíðina í París þar sem hann tók við heiðursverðlaunum fyrir feril sinn.
En það var ekki viðurkenningin sem fór mest á flug.
Myndir af Carrey á rauða dreglinum dreifðust hratt á samfélagsmiðlum og margir sögðust varla þekkja hann. Í athugasemdum mátti meðal annars sjá spurningar á borð við: „Er þetta gríma?“ og vangaveltur um hvort leikarinn hefði farið í fegrunaraðgerðir.
Engar staðfestar upplýsingar liggja fyrir um slíkt.

Fólk trúði varla eigin augum
Carrey, sem er 64 ára, hefur lítið sést opinberlega undanfarin ár. Hann sagðist árið 2022 vera að stíga til hliðar frá leiklist, en sneri síðar aftur í hlutverk Dr. Robotnik í Sonic-myndunum. Hann á einnig að endurtaka hlutverkið í fjórðu myndinni sem væntanleg er árið 2027.
Viðbrögðin á netinu snerust þó fyrst og fremst um útlitið.

Heiðraði föður sinn í ræðu
Í þakkarræðu sinni heiðraði Carrey föður sinn og sagði hann hafa haft djúpstæð áhrif á líf sitt. Hann þakkaði einnig dóttur sinni, barnabarni og sambýliskonu fyrir stuðninginn.
Þrátt fyrir tilfinningaþrungna stund á sviðinu var það útlit leikarans sem kveikti umræðuna.