Jim Gaffigan með The Pale Tourist í Norðurljósum Hörpu

Bandaríski leikarinn, höfundurinn, og grínistinn Jim Gaffigan er á leiðinni til Íslands  með splunkunýtt uppistand, The Pale Tourist, og flytur það í Hörpu 7. maí 2020.

Jim er heimsþekkt andlit í grín senunni og hefur reglulega komið fram í svokölluðum “late night” þáttum á borð við The Late Show with Stephen Colbert, Late Night with Seth Meyers, Late Night with Conan O’Brien, The Late Show with David Letterman og Jimmy Kimmel Live. Hann hefur gert þrjá grín sérþætti (e. comedy specials) sem hafa hlotið Grammy tilnefningu: Mr. Universe, Obsessed og Cinco.
Grínstíllinn hans er sérstakur þar sem hann veltir upp athugunum og staðreyndum um líf sitt sem föður, leti, mat og hið daglega líf, sem hann túlkar á sprenghlægilegan og frumlegan hátt. Jim fékk þann heiður að vera með fyrsta grín sérþátt frá Amazon, Quality Time, en hann kom út í ágúst 2019 og er þessa stundina með 100% einkunn á Rotten Tomatoes.

Miðasala er hafin hér.
Auglýsing

læk

Instagram