Leikstjóri Sögunnar endalausu allur

Þýski kvikmyndaleikstjórinn Wolfgang Petersen er látinn. Hann lést á heimili sínu í Kaliforníu í Bandaríkjunum þann 12. ágúst síðastliðinn, 81 árs að aldri. Hafði hann glímt við krabbamein í brisi á undanförnum árum.

Petersen var best þekktur fyrir kvikmyndir á borð við Das Boot, The NeverEnding Story, Outbreak, Air Force One, The Perfect Storm, Troy og Poseidon.

Petersen fæddist í bænum Emden í Þýskalandi árið 1941. Hann hóf leikstjóraferil sinn í Þýskalandi en gerði garðinn frægan eftir að hafa leikstýrt kafbátamyndinni Das Boot árið 1982. Sú mynd hlaut fjölmargar tilnefningar til Óskarsverðlauna. Var Petersen tilnefndur fyrir leikstjórn og handrit myndarinnar.

Petersen átti að baki langan feril í Hollywood þar sem hann var helst þekkktur fyrir að leikstýra hasarmyndum á borð við Air Force One, In The Line of Fire og The Perfect Storm.

Auglýsing

læk

Instagram