Logi Bergmann heimsækir Rúrik Gíslason

Logi Bergmann heimsækir Rúrik Gislason, drekkur kaffi með honum, fer í bíltúr, göngutúr, á trúnó og kemst að ýmsu fróðlegu um þennan fyrrverandi landsliðsmann í knattspyrnu sem virðast vera allir vegir færir og er nú er farinn að leika, syngja, semja, dansa, hanna, framleiða og stunda viðskipti. Svo eitthvað sé nefnt.
Í einlægu spjalli segir hann Loga frá átökum í lok knattspyrnuferilsins, drauminn sem varð að veruleika, að takast svo á við ný hlutverk, frægðina og allt hitt líka.
Þessi einn allra besti sonur Kópavogs og Borgarfjarðar kemur í Sjónvarp Símans Premium fimmtudaginn 18. febrúar og í opinni dagskrá kl 20.00 sama dag.

Auglýsing

læk

Instagram