Frá Menntaskóla Borgarfjarðar koma þrír ferskir drengir, Einar, Styrmir og Stefnir. Þeir ætla á TGI Fridays ef þeir tapa.
1. Af hverju haldið þið að þið eigið möguleika á að vinna?
„Við erum bara flottir strákar að gera fína hluti.“
2. Hvað ætlið þið að gera ef þið tapið?
„Ætli við förum ekki bara á TGI Fridays.“
3. Skiptir ekki bara máli að vera með?
„Jú og að allir fái að vera með.“
4. Hvað ætlið þið að setja á Twitter ef þið vinnið?
„Ég held það sé enginn í okkar hóp á Twitter.“
5. En ef þið tapið?
„Sama svar og 4.“
6. Hvernig er að vera ungur tónlistarmaður í dag?
„Það er bara gaman, kannski ekki mikið af ótroðnum slóðum eftir en maður reynir sitt.“
7. Sýnið okkur uppáhaldsmyndina ykkar af Instagram
„Það er heldur enginn inni á Instagram.“
8. Hvað viltu segja við þau sem eru að spá í að dreifa þessari færslu til auka vinningslíkur ykkar en eru ekki viss?
„Frábært framtak.“