Páll Óskar fékk að endurskrifa líffræðina í beinni útsendingu

Í þætti Gísla Marteins á RÚV um helgina mætti Páll Óskar til að kynna nýja plötu. Í stað hefðbundins tónlistarspjalls fékk hann að halda langdregna einræðu um líffræði, kyngervi og stöðu hinsegin fólks á Íslandi.

„Öll byrjum við sem kvenkyns“

Með sínum skrautlega stíl sagði Páll:

„Allir líffræðingar, allir sem stúdera, vita þetta – fóstur eru kvenkyns til að byrja með. Öll. Ég, þú, Snorri Másson – allir.“

Auglýsing

Síðan hélt hann áfram og fullyrti að kyn væri „róf eða spektrum“ og að umræðan um líffræðilegt kyn væri ekki bundin hefðbundinni tvískiptingu.

Rugl í umræðunni

Kynjafræði hefur frá upphafi greint á milli líffræðilegs kyns annars vegar og kyngervis hins vegar. Líffræðilegt kyn hefur verið skilgreint sem tvöfalt (karl og kona), en kyngervi sem félagslegt og fljótandi.
Nýja „vók“-útgáfan ruglar hins vegar þessu saman og talar um líffræðilegt kyn sem flæðandi (e. fluid), non-binary eða á rófi. Gagnrýnendur segja slíkar fullyrðingar stangast á við grunnlíffræði og gera umræðuna að aðhlátursefni.

Frá tónlist til pólitísks boðskapar

Það sem átti að vera létt spjall um nýja plötu varð að pólitískri líffræðiræðu um „bakslag“ og meintar ofsóknir gegn hinsegin fólki. Engin andmæli komu fram, og endaði þátturinn því eins og predikun frekar en tónlistarviðtal.

Ísland speglar alþjóðlega umræðu

Þessi uppákoma sýnir vel hvernig íslenska kyn-umræðan hefur þróast: frá skýrri aðgreiningu milli líffræði og félagslegs kyngervis til tilrauna til að endurskrifa náttúrufræðina sjálfa. Ísland er þar með komið á sömu villigötur og við sjáum víða erlendis þar sem umræðan hefur orðið pólitísk, ruglingsleg og í mörgum tilvikum komin í órafjarlæg frá öllum vísindalegum grunni.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Sema Erla 🧿 (@semaerla)

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing